Færslur skrifaðar í júní 2007
Sumartónleikarnir hefjast í dag
Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju hefjast í dag, laugardaginn 30. júní, með veglegri dagskrá. Skálholt býður alla hjartanlega velkomna á sannkallaða tónlistarveislu í sumar!
Fært inn 30. júní 2007 | Lesa áframOrgelleikur í Skálholtsdómkirkju
Í þessari og næstu viku verður leikið á orgelið í Skálholtsdómkirkju kl. 11 og 14 alla virka daga. Á þessum árstíma er verulegur fjöldi ferðamanna á hlaðinu í Skálholti og geta þeir notið tónlistar í kirkjunni í þessari og næstu viku.
Eyþór Franzson Wecher, nemandi í orgelleik hjá Úlrik Ólasyni, mun leika á hljóðfærið en [...]
Umhverfismálþing Þjóðkirkjunnar á Jónsmessu
Fræðsludeild Biskupsstofu og Skálholtsskóli efna til málþings um umhverfismál undir fyrirsögninni Ísland — náttúrulega dagana 23.-24. júní. Hver er framtíðarsýn stjórnmálamanna, hagsmunaaðila, fagfólks, heimspekinga og guðfræðinga á náttúru Íslands á 21. öld? Hvað ber að vernda og hvað má nýta? Þessum spurningum verður m.a. reynt að svara á málþinginu.
Fært inn 22. júní 2007 | Lesa áframKarlakór frá Tíról (Austurríki) heimsækir Skálholt
Frá 5.-12. júní nk. verður karlakórinn frá Schwoich í Tíról (Austurríki) í heimsókn í Skálholti. Þessi kór syngur fallega, þjóðlega tónlist úr heimahögunum enda hefur hann á að skipa nokkra af færustu jóðlurum Tírólsvæðisins.
Kórinn fékk mjög góðar viðtökur á ferð sinni um Ísland fyrir þremur árum og eru þeir nú komnir aftur.Þeir munu halda [...]

