Færslur skrifaðar í mars 2008
Alan M. Dershowitz frá Harvard á Íslandi
Í næstu viku heimsækir Ísland bandaríski lögfræðingurinn Alan M. Dershowitz, prófessor við lagadeild Harvard-háskóla. Hann heldur námskeið fyrir lögfræðinga og dómara í Skálholtsskóla á miðvikudag og fimmtudag.
Fært inn 28. mars 2008 | Lesa áframHjónanámskeið og kyrrðardagar hjóna
Dagana 3.-6. apríl verður dagskrá í Skálholtsskóla helguð hjónum og sambýlisfólki. Um er að ræða sólarhringsnámskeið frá fimmtudegi yfir á föstudag og kyrrðardagar fyrir hjón sem hefjast nk. föstudag og standa fram yfir hádegi á sunnudag.
Fært inn 21. mars 2008 | Lesa áframKyrrð og sorg
Helgina 28.-30. mars leiðir séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur kyrrðardaga í Skálholti ásamt Kristni Ólasyni rektor. Kyrrðardagarnir eru tileinkaðir umfjöllun um sorg og sorgarviðbrögð.
Fært inn 18. mars 2008 | Lesa áframMikill söngur um síðustu helgi
Um síðustu helgi (7.-9. mars) heyrðust framandi en upplífgandi tónar í Skálholti. Sindre Eide trompetleikari og prestur frá Noregi og Estrid eiginkona hans buðu upp á námskeið þar sem sungin var trúarleg tónlist úr öllum heimsálfum. Lögin hafa hrífandi rytma og hljóðfæraslátt. Góð stemning var í hópi þátttakenda en hann samanstóð af tónlistarmönnum og söngfólki á öllum aldri.
Fært inn 14. mars 2008 | Lesa áframKyrrð í dymbilviku
Í dymbilviku verða kyrrðardagar í Skálholti í umsjá hjónanna dr. Hjalta Hugasonar og Ragnheiðar Sverrisdóttur djákna.
Fært inn 8. mars 2008 | Lesa áframKyrrð með Qi Gong
Dagana 11.-13. mars nk., það er frá þriðjudegi til fimmtudags, leiðir Gunnar Eyjólfsson leikari kyrrðardaga með æfingum og hugmyndafræði Qi Gong.
Fært inn 1. mars 2008 | Lesa áfram
