Færslur skrifaðar í júlí 2008

Þumla færslu

Guð minn, ljúk upp gleðihliðum

Í kvöld verða haldnir minningartónleikar um séra Guðmund Óla Ólafsson í Skálholtsdómkirkju kl. 20.00. Bachsveitin í Skálholti flytur tónlist eftir Johann Sebastian Bach undir stjórn Peters Spisskys.

Fært inn 24. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Námskeið söngmálastjóra

Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Hörður Áskelsson, býður í samvinnu við Skálholtsskóla, Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar, Hallgrímskirkju og fleiri aðila barnakórstjórum og organistum landsins til námskeiða í ágústmánuði.

Fært inn 23. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Starfsfólk óskast í almenn þjónustustörf

Okkur vantar starfsfólk í almenn hótel- og þjónustustörf í Skálholtsskóla sem fyrst. Á staðnum fer fram mjög fjölbreytt starfsemi allan ársins hring.

Fært inn 23. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Endurreisn fornminja

Undanfarna daga hefur verið unnið að frágangi hluta húsarústanna í Skálholti. Um er að ræða endurhleðslu nokkurra veggja og lagningu malargólfs til að gera rústirnar aðgengilegri gestum og gangandi.

Fært inn 17. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Norræn samkirkjuleg kvennaráðstefna

Dagana 7.-9. ágúst nk. verður haldin norræn samkirkjuleg kvennaráðstefna í Skálholti. Yfirskrift ráðstefnunnar er Källor till Liv uppspretta lífs og er dagskrá hennar afar fjölbreytt. Að ráðstefnunni stendur Nordisk Ekumenisk Kvinnokommitté (NEKK).

Fært inn 15. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Blandaður kór frá Barr í Frakklandi

Franski kórinn Chorale Eranthis frá Barr í Elsass heldur tvenna tónleika á Íslandi í vikunni. Fyrri tónleikarnir verða í Digraneskirkju, Kópavogi, fimmtudaginn 17. júlí kl. 20.00 en síðari tónleikarnir verða í Skálholtsdómkirkju föstudaginn 18. júlí kl. 20.00.

Fært inn 12. júlí 2008 | Lesa áfram
Þumla færslu

Skálholtshátíð 19.-20. júlí

Hin árlega Skálholtshátíð verður að venju haldin á Þorláksmessu að sumri 20. júlí nk. Þessa helgi er fjölbreytt dagskrá í Skálholti auk pílagrímagöngu frá Þingvöllum.

Fært inn 11. júlí 2008 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.