Skálholtshátíð 19.-20. júlí
Hin árlega Skálholtshátíð verður að venju haldin á Þorláksmessu að sumri 20. júlí nk. Þessa helgi er fjölbreytt dagskrá í Skálholti auk pílagrímagöngu frá Þingvöllum en pílagrímarnir munu mæta í hátíðarmessu í Skálholtsdómkirkju kl. 14.00.
Dagskráin hefst með tónleikum franska kórsins Chorale Eranthis frá Elsass í Skálholtsdómkirkju á föstudagskvöld kl. 20.00. Kórinn flytur evrópska kirkjutónlist frá ýmsum tímum. Á laugardag flytur Kolbeinn Bjarnason flautuleikari erindi í Skálholtsskóla kl. 14.00 sem hann nefnir Öfganna á milli. Þá eru tvennir tónleikar í boði Sumartónleikanna í Skálholti: Stiklað á öldum íslenskrar trúartónlistar. Sköpun heimsins, tíðasöngvar og húgenottasálmar í flutningi Voces Thules kl. 15.00.
Kl. 17.00 hefst síðari hluti tónleika Kolbeins Bjarnasonar undir yfirskriftinni Öfganna á milli (II) … til Ferneyhough. Guðrún Óskarsdóttir leikur á semball og Kolbeinn á flautu. Kl. 18.00 flytja Voces Thules vesper.
Á sunnudag er hátíðarmessa í Skálholtsdómkirkju kl. 14.00. Prestur: Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup. Organisti: Steingrímur Þórhallsson. Sönghópurinn PAX annast söngflutning undir stjórn Steingríms.
Kl. 16.30 flytur Hörður Torfason lagahöfundur trúarlega tónlist í kirkjunni og dr. Már Jónsson prófessor flytur erindi í tilefni af útkomu dómabókar Þórðar Þorlákssonar biskups. Áður höfðu komið út dómabækur Brynjólfs Sveinssonar og Jóns Vídalíns.
Aðgangur er ókeypis í alla þessa viðburði og eru allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir.


