Námskeið söngmálastjóra
Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, Hörður Áskelsson, býður í samvinnu við Skálholtsskóla, Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar, Hallgrímskirkju og fleiri, barnakórstjórum, organistum og kirkjukórum landsins til nokkurra námskeiða í ágústmánuði. Yfirskrift námskeiðanna er Syngjandi kirkja á ári sálmsins 2008.
Í Skálholti verða haldin tvö námskeið. Fyrra námskeiðið er fyrir barnakórastjóra og verður haldið dagana 14.-17. ágúst. Kennarar á þessu námskeiði verða þau Jón Stefánsson, stjórnandi Gradualekórs Langholtskirkju, og Þórunn Björnsdóttir, stjórnandi Skólakórs Kársness. Sérstök áhersla verður lögð á kirkjulega tónlist jafnt fyrir byrjendakóra og þá sem eru lengra komnir. Kenndar verða skemmtilegar upphitunaræfingar og söngvar með hreyfingum sem stuðla að aukinni einbeitingu og aga. Þátttakendum gefst einnig kostur á að æfa sig í að kenna og stjórna 12 frábærum stúlkum úr Gradualekórnum sem verða með á æfungunum og hópi 8-9 ára barna úr Kársnesskóla.
Síðara námskeiðið verður dagana 17.-21. ágúst og er ætlað organistum. Þar verður kenndur litúrgískur orgelleikur (spuni), kórstjórn, auk þess sem báðar námsgreinar fléttast saman í alveg nýrri grein, kórspuna. Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á guðsþjónustuna, orgelundirleik við almennan safnaðarsöng, gerð stuttra forspila og frjálsan spuna. Valdir verða þekktir sálmar sem falla vel til almenns söngs, svo og nýir sálmar. Kennt verður við Frobeniusarorgel Skálholtsdómkirkju. Leiðbeinandi er Mattias Wager, organisti dómkirkjunnar í Stokkhólmi.
Á sama tíma verður boðið upp á kórstjórnarkennslu með áherslu á guðsþjónustuna. Æft verður nýtt efni sem finna má í Söngvasjóði kirkjunnar. Félagar úr kammerkórnum Schola cantorum þjóna sem æfingakór ásamt þátttakendum. Fjallað verður um (1) kóræfinguna (2) stjórnunina og (3) efnisvalið. Inn í þetta fléttist kynning á nýju efni til kórsöngs í messunni. Virkir þátttakendur stjórna m.a. því efni sem kynnt verður. Leiðbeinandi er Hörður Áskelsson söngmálastjóri.
Þá mun Eyþór Ingi Jónsson organisti Akureyrarkirkju kenna kórspuna sem er í fyrsta skipti á dagskrá organistanámskeiðs hér á landi. Unnið verður út frá einföldum laglínum sem og fjölradda söng.


