Menntun og menning í Skálholtsstifti 1620-1730
Dagana 17.-19. október nk. verður haldin ráðstefna um menntun og menningarmál í Skálholtsstifti 1620-1730 í Skálholtsskóla. Ráðstefnan er öllum opin.
Dagskrá ráðstefnunnar hefst með setningarávarpi séra Sigurðar Sigurðarsonar vígslubiskups kl. 20.00 föstudagskvöldið 17. október. Því næst verða flutt erindi eins og hér segir:
Föstudagur 17.10:
Loftur Guttormsson. Gísli Oddsson Skálholtsbiskup og hrísvöndur Drottins.
Þórunn Sigurðardóttir. „A sojourner for breeding sake“. Um Þorleif Gíslason frá Hlíðarenda og Skálholtsakademíuna á tíunda áratug 17. aldar.
Laugardagur 18.10:
Margrét Eggertsdóttir. Handritamiðstöðin í Skálholti.
Sigurður Pétursson. „Obscurus Clarum Te Vir Venerande Saluto“.
Skúli Sæland. Steinboginn og hústrú Helga.
Vilborg Auður Ísleifsdóttir. Hugleiðingar um menntun kvenna í kaþólskum og lútherskum sið.
Mjöll Snæsdóttir. Skálholtsskóli til forna.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir. Tónlistararfleifð Þórðar biskups.
Hrafn Sveinbjarnarson. Nokkur orð um tónlistarkennsku í Skálholti.
Guðrún Ingólfsdóttir. Með hempuna á hælunum. Rýnt í sjálfshjálparbók Tyrfings Finnssonar Skálholtssveins.
Gunnar Marel Hinriksson. Menntun og starf Páls Björnssonar í Selárdal.
Silja Hrund Barkardóttir. „Ísland reiknast liggja og lafa á norðanverðum vesturhölluðum jarðarhnetti“. Síra Jón Daðason á Arnarbæli og Gandreið hans.
Tónlistarflutning annast Sumartónleikarnir í Skálholti. Umsjón: Sigurður Halldórsson listrænn framkvæmdastjóri.
Sunnudagur 19.10:
Árbítur og brottferð
Eins og fyrr segir er ráðstefnan öllum opin. Skráning og frekari upplýsingar í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is. Ráðstefnugjaldið er kr. 5000.- Dvalarkostnaður með fullu fæði kr. 22.000.-


