Færslur skrifaðar í mars 2009

Þumla færslu

Athvarf og kyrrð á erfiðum tímum

Helgina 17.-19. apríl nk. verður boðið upp á kyrrðardaga í Skálholti fyrir alla þá sem vilja draga sig út úr daglegu áreiti og leita athvarfs á helgum stað. Lögð verður áhersla á öryggi, huggun og uppörvun í orði og tónum.

Fært inn 30. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Síðasti fermingarhópurinn í vetur

Í gær kom hingað síðasti hópur fermingarbarna á sérstakt fermingarnámskeið í Skálholti. Þessi börn komu frá Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustri.

Fært inn 25. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kyrrð í dymbilviku

Dagana 8.-11. apríl nk. verða haldnir kyrrðardagar í Skálholti sem séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup, rektorshjónin í Skálholti og Árni Bergmann rithöfundur og blaðamaður hafa umsjón með. Á þessum kyrrðardögum verður einkum fjallað um atburði kyrruviku.

Fært inn 23. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kammerkór Akraness með tónleika

Þriðjudagskvöldið 19. maí nk. kl. 20.30 mun Kammerkór Akraness halda tónleika í Skálholtsdómkirkju. Boðið verður upp á fjölbreytta efnisskrá þar sem víða verður komið við í tónlistarflórunni.

Fært inn 18. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kyrrð og íhugun

Helgina 27.-29. mars nk. verða haldnir kyrrðardagar í Skálholti undir yfirskriftinni Kyrrð og íhugun. Þessir dagar eru ætlaðir öllum sem búa við annríki og álag og vilja staldra við, hvílast og endurnærast.

Fært inn 18. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Fjörugir dagar

Í síðustu viku heimsótti Skálholt á þriðja hundrað fermingarbörn úr Árnesprófastsdæmi ásamt prestum og öðru fylgdarliði. Hér var góð stemning og er óhætt að fullyrða að þessir dagar hafi verið ákaflega vel heppnaðir.

Fært inn 18. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Efnahagshrunið á Íslandi

Dagana 13.-14. mars nk. verður boðið upp á námskeið fyrir almenning í Skálholti um efnahagsástandið. Yfirskrift námskeiðsins er Efnahagshrunið á Íslandi. Kennarar verða þeir Vilhjálmur Bjarnason lektor og Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðingur.

Fært inn 8. mars 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Endurmenntun presta og djákna

Nýlega lauk síðari áfanga í endurmenntunarnámskeiði Guðfræði- og trúarbragðadeildar Háskóla Íslands og Kirkjuráðs sem haldin eru í Skálholtsskóla.

Fært inn 2. mars 2009 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.