Gerir dauðinn okkur kleift að lifa einstöku lífi?
Fimmtudagskvöldið 30. apríl nk., kl. 20.00, flytur dr. Erna Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og kennslustjóri í Skotlandi erindi í Skálholtsskóla um líknarmeðferð og merkingu og tilgang dauðans.
Hún lýsir erindinu svo: ,,Í þessu erindi mun ég fjalla um merkingu og tilgang dauðans út frá kenningum Cicely Saunders, frumkvöðuls líknarmeðferðar fyrir deyjandi einstaklinga, og tilvistarheimspekingsins Martins Heideggers. Saunders hvatti til breyttra viðhorfa til dauðans, með hugmyndafræði sinni, og lagði áherslu á nauðsyn þess að líta á dauðann sem eðlilegan hluta lífsins. Hornsteinn líknarmeðferðar var lagður með hugmyndum hennar um að óttinn við dauðann yki á einangrun og vanlíðan deyjandi fólks. Saunders áleit að opin og heiðarleg umræða um dauðann skilaði sér í betri líðan, auknum möguleika til þroska og meiri lífsánægju.
Martin Heidegger lagði áherslu á að afneitun dauðans væri innbyggð í vestræna menningu, eða væri lærð hegðun þeirra sem lifa þar. Af þessum sökum væru afneitunar viðbrögð gagnvart dauðanum orðin vestrænu fólki eiginleg. Hann var hins vegar sammála Saunders að þeir sem geta lifað með vitneskju um návist eigin dauða eigi möguleika á einstöku lífi.“
Erindið er haldið á vegum Grettisakademíunnar. Hægt er að kaupa kvöldverð, gistingu og morgunverð, fyrir þá sem vilja.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is

Dr. Erna Haraldsdóttir


