Færslur skrifaðar í maí 2009

Þumla færslu

Petite messe solennelle

Föstudaginn 5. júní nk. kl. 20.00 heldur finnski kórinn Canzonetta Nova tónleika í Skálholtsdómkirkju. Þar verður flutt verkið Petite messe solenelle eftir Gioachino Rossini. Aðgangur er ókeypis.

Fært inn 22. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Qi gong og kyrrð

Uppbókað er á Qi gong daga með kyrrðarívafi hér í Skálholti um helgina. Gunnar Eyjólfsson leikari leiðir þessa daga ásamt Birni Bjarnasyni. Dagskráin hefst síðdegis á föstudag og lýkur eftir hádegi á sunnudag.

Fært inn 20. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Ull er gull

Í þessari viku opnaði Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri og leiðsögumaður sýningu á verkum sínum í Skálholtsskóla. Listakonan hreifst af eiginleikum íslensku ullarinnar og nýtir hana til listsköpunar á nýstárlegan hátt.

Fært inn 16. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Góðir gestir úr Neskirkju

Í gær komu góðir gestir frá Neskirkju í heimsókn. Þetta voru eldri borgarar ásamt presti sínum sr. Sigurði Árna Þórðarsyni.

Fært inn 14. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kór frá Nacka í Svíþjóð með tónleika

„Med lust och fägring stor …“ er yfirskrift tónleika í Skálholtsdómkirkju á föstudagskvöldið næsta (15. maí) kl. 20.00 þar sem sænskur kór syngur ásamt íslenskum gestakórum. Aðgangur er ókeypis.

Fært inn 12. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Samkirkjulegur alþjóðafundur

Í dag lauk fundi alþjóðlegrar samkirkjulegrar nefndar hér í Skálholti. Um er að ræða hóp á vegum Lútherska heimssambandsins (LWF) og nefnd Austurkirkjunnar.

Fært inn 7. maí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Bæn og íhugun í kyrrð

Dagana 7.-11. maí nk. verða sérstakir kyrrðardagar helgaðir bæn og íhugun. Þeir byggjast á kristinni íhugunaraðferð sem kallast Centering Prayer. Þessi íhugunaraðferð nýtur vaxandi vinsælda á Vesturlöndum.

Fært inn 1. maí 2009 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.