Skálholtshátíð 2009

Sérvalin mynd

Dagskrá skálholtshátíðar hefur verið ákveðin og er þegar í undirbúningi. Hátíðin er haldin sem næst Þorlákshátíð að sumri þ. 20. júlí. Hún verður því haldin helgina 18.-19. júlí nk. Þessa helgi er gengin pílagrímaganga frá Þingvöllum til Skálholts. Fánaborgina á myndinni gerði Halldór Ásgeirsson listamaður.

Dagskrá
Laugardagur (18.7)

Kl. 15.00 Tónleikar í Skálholtsdómkirkju:
G.F. Händel – 250 ára ártíð. Orgelkonsertar op. 4 í g moll og op. 7 í B dúr. Kantata – Amarilli Vezzosa HWV 82. Händel-hátíðarhljómsveitin spilar. Konsertmeistari: Jaap Schröder. Söngvarar: Marta Halldórsdóttir sópran, Jóhanna Halldórsdóttir alt. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgel.

Kl. 17.00 Tónleikar í Skálholtsdómkirkju:
F.J. Haydn – Skozk þjóðlög. 8 Skozk þjóðlög útsett fyrir söngrödd, fiðlu, selló og sembal við ljóð eftir Robert Burns o.fl. Kvintett fyrir strengi í G dúr Hob II:2. Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jaap Scröder fiðla, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Martin Frewer víóla, Bjarni Frímann Bjarnason víóla, Sigurður Halldórsson selló og Steingrímur Þórhallsson semball.

Sunnudagur (19.7)
Kl. 13.00 Hátíðartónar á undan messu. M.a. kaflar úr Skálholtskantötu Páls Ísólfssonar. Steingrímur Þórhallsson spilar á orgel. Hljómeyki syngur undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.

Kl. 14.00 Hátíðarguðsþjónusta í Skálholtsdómkirkju. Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti: Steingrímur Þórhallsson. Hljómeyki syngur undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.

Kl. 16.30 Hátíðarsamkoma í Skálholtsdómkirkju. Dr. Pétur Pétursson prófessor flytur erindi í tilefni af 100 ára sögu endurreisnar Skálholtsstaðar. Í nóvember 1909 var séra Valdimar Briem sóknarprestur á Stóra-Núpi í Gnúpverjahreppi kosinn fyrsti vígslubiskup skálholtsbiskupsdæmis. Einnig verður verður flutt verkið Dixit Dominus HWV 232 eftir Händel. Flytjendur: Hljómeyki og Händel-hátíðarhljómsveitin. Konsertmeistari: Martin Frewer. Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Marta G. Halldórsdóttir sópran, Jóhanna Halldórsdóttir alt og Pétur Björnsson tenór. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson.

Allir hjartanlega velkomnir.