Færslur skrifaðar í júlí 2009

Þumla færslu

Verslunarmannahelgin í Skálholti

Sannkölluð tónlistarveisla er í boði fyrir alla þá sem sækja Skálholt heim um Verslunarmannahelgina. Dagskráin hefst á fimmtudagskvöld kl. 20.00 og síðan eru sex tónleikar á dagskrá helgarinnar auk guðsþjónustu á sunnudag kl. 17.00.

Fært inn 28. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Dagskrá námskeiðs Ann Ulanov 7.–8. september

Dagskrá námskeiðs Ann Ulanov, sem haldið verður dagana 7.–8. september 2009 í Reykjavík og Skálholti, er sem hér segir.

Fært inn 26. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Dagskrá Sumartónleikanna um helgina

Um helgina hefst dagskrá Sumartónleikanna með fyrirlestri í Skálholtsskóla á laugardag kl. 14.00. Fyrirlesturinn er um efni tónleikanna Al fresco sem fluttir voru á fimmtudagskvöld og verða endurteknir í Skálholtsdómkirkju á laugardag kl. 15.00.

Fært inn 23. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Al fresco

Nk. fimmtudagskvöld kl. 20.00 verða haldnir tónleikar á vegum Sumartónleika í Skálholtsdómkirkju undir yfirskriftinni Al fresco. Á efnisskránni eru verk eftir snemm-barrokk tónskáldið Girolamo Frescobaldi (1583-1643) og fjögur ung tónskáld.

Fært inn 21. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Metþátttaka í pílagrímagöngu

Metþátttaka var í pílagrímagöngunni á skálholtshátíð um helgina. Alls tóku 60 manns þátt. Flestir gengu alla gönguleiðina frá Þingvöllum til Skálholts en sumir komu inn í gönguna á ólíkum áfangastöðum.

Fært inn 20. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kammerkórinn Northern Spirit

Þýski kammerkórinn Northern Spirit mun halda tónleika ásamt stjórnanda sínum Gordon Hamilton í Skálholtsdómkirkju nk. föstudag (24.7) kl. 17.00.

Fært inn 20. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Ánægjuleg heimsókn

45 gestir frá Dagvist og endurhæfingarmiðstöð MS sjúklinga í Reykjavík komu í ánægjulega heimsókn á fimmtudaginn var. Þetta var sumarferð hópsins, fólkið borðaði góðan hádegisverð í matsal Skálholtsskóla.

Fært inn 18. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Fánaborg Halldórs Ásgeirssonar

Í tilefni af skálholtshátíð nú um helgina hefur verið settur upp fánahringurinn sem Halldór Ásgeirsson listamaður gerði í tilefni af 950 ára afmæli biskupsstólsins árið 2006.

Fært inn 17. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kynningarfundur 16. júlí kl. 16.30

Minnum á kynningarfundinn vegna pílagrímagöngunnar um helgina í kaffistofu Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu á morgun, fimmtudag (16.7.), kl. 16.30.

Fært inn 15. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Haydn og Schubert á dagskrá Sumartónleika

Um næstu helgi er tónlist eftir J. Haydn, F. Schubert, G. Sammartini og F.A. Hoffmeister á dagskrá Sumartónleikanna í Skálholti.

Fært inn 7. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Glæsileg setningarhátíð Sumartónleika

Óhætt er að fullyrða að Sumartónleikarnir í Skálholti hafi átt góða byrjun á 35. starfsári sínu. Helgin var ákaflega vel heppnuð og viðburðirnir vel sóttir.

Fært inn 7. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Dagskrá ráðstefnu 23.-24. ágúst nk.

Dagskrá ráðstefnunnar Þjóðkirkjan og lýðræðið sem haldin verður dagana 23.-24. ágúst nk.

Fært inn 2. júlí 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Nýr organisti tekinn við

Jón Bjarnason organisti hefur tekið til starfa frá og með 1. júlí. Hann mun spila við sína fyrstu guðsþjónustu nk. sunnudag kl. 17.00.

Fært inn 2. júlí 2009 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.