Færslur skrifaðar í ágúst 2009

Þumla færslu

Ann Ulanov frá New York

Dagana 7.-8. september nk. býður dr. Ann Ulanov prófessor við Union Theological Seminary í New York upp á tveggja daga námskeið fyrir presta, djákna og guðfræðinga ásamt dr. Lisa Cataldo sem er aðstoðarprófessor við Fordham University.

Fært inn 22. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Nýr kyrrðardagabæklingur

Nú er kominn út nýr kyrrðardagabæklingur með dagskrá vetrarins 2009-2010. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og þar eru ýmsar nýjungar. Hægt er að skoða bæklinginn hér á vefnum eða panta hann í gegnum síma.

Fært inn 21. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Færeyskur kór í heimsókn

Sunnudaginn 6. september nk. kl. 14.00 heldur færeyski kammerkórinn Tarira tónleika í Skálholti. Hann mun auk þess syngja í messu í Skálholtsdómkirkju kl. 11.00.

Fært inn 21. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Þjóðkirkjan og lýðræðið

Dagana 23.-24. ágúst nk. verður haldið málþing í Skálholti um Þjóðkirkjuna og lýðræðið. Prestar og leikmenn sem hafa beina reynslu af starfi innan kirkjunnar og þeir sem hafa stöðu sinnar vegna þekkingu á því efni sem liggur málþinginu til grundvallar eru sérstaklega velkomnir.

Fært inn 21. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Messa á morgun kl. 14.00

Barnakórstjóranámskeiði söngmálastjóra lýkur með hátíðamessu í Skálholtsdómkirkju n.k. sunnudag klukkan 14.00.

Fært inn 15. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Heinrich von Biber (1644-1704)

Fimmtudagskvöldið 20. ágúst nk. kl. 18.00 verða Talnabandssónötur Heinrich von Biber fluttar í Skálholtsdómkirkju. Flytjendur eru Martin Frewer, barokkfiðla, og Dean Ferrell, violone og basse de violon.

Fært inn 13. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kristin íhugun í Skálholtsbúðum

Helgina 28.-30. ágúst nk. verður boðið upp á kristna íhugun/kyrrðarbæn (e. centering prayer) í Skálholtsbúðum. Sýnt verður efni með Thomas Keating (myndbönd), Lectio Divina verður kynnt og boðið verður upp á æfingar og umræður. Rafræn skráning hér.

Fært inn 12. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Óperukórinn og New England Youth Ensemble

Miðvikudagskvöldið 12. ágúst nk. halda Óperukórinn í Reykjavík og hljómsveitin New England Youth Ensemble við Columbia Union College í Bandaríkjunum tónleika í Skálholtsdómkirkju kl. 20.00. Stjórnandi: Garðar Cortes.

Fært inn 8. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Messa kl. 14.00 á sunnudaginn kemur

Næstkomandi sunnudag, 9. ágúst, verður messa kl. 14.00 í Skálholtsdómkirkju. Ástæðan fyrir þessari tímasetningu er samkirkjuleg pílagrímaganga kvenna á vegum Hjálpræðishersins á Íslandi.

Fært inn 6. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Jaap Schröder í Skálholti

Jaap Schröder fiðluleikari hefur heimsótt Ísland 18 sumur í röð. Hann kom fyrst í Skálholt sumarið 1993 og hefur komið árlega síðan til tónleikahalds og hljóðritana á vegum Sumartónleika í Skálholti.

Fært inn 6. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Flautukórinn á fimmtudagskvöld

Annað kvöld verða lokatónleikar Sumartónleikanna í Skálholti á þessu sumri. Íslenski flautukórinn flytur nútímatónlist eftir íslensk og erlend tónskáld.

Fært inn 5. ágúst 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Sumarnámskeið söngmálastjóra

Dagana 13.-20. ágúst nk. býður söngmálastjóri upp á tvö námskeið í Skálholti. Fyrra námskeiðið er fyrir barnakórstjóra en síðara námskeiðið er fyrir organista.

Fært inn 4. ágúst 2009 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.