Færslur skrifaðar í nóvember 2009

Þumla færslu

Veirurnar í Skálholtsdómkirkju

Sönghópurinn Veirurnar mun halda aðventutónleika í Skálholtsdómkirkju miðvikudagskvöldið 2. desember næstkomandi og hefjast þeir kl. 20.30. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir!

Fært inn 27. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

„Nýtt“ og „heilagt“ Skálholt

Í dag stóð til að dr. Hjalti Hugason prófessor héldi erindi í Skálholtsskóla um hugmyndir Sigurbjörns Einarssonar um endurreisn staðarins 1947-1954. ERINDIÐ FELLUR NIÐUR VEGNA VEIKINDA!

Fært inn 20. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Íhugun og slökun á aðventu

Helgina 4.-6. desember nk. verða haldnir kyrrðardagar hér með áherslu á hreyfingu, slökun og kyrrð. Umsjón hafa Anna Ingólfsdóttir jógakennari og Pétur Pétursson prófessor.

Fært inn 18. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kristín íhugun á kyrrðardögum

Dagana 20.-24. nóvember nk. leiðir Therese Saulnier frá Bandaríkjunum fimm-daga-kyrrðardaga með áherslu á „Fagnaðarbæn“ eða Welcoming Prayer í kyrrð og með íhugun.

Fært inn 12. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Endurreisn með list

Sunnudaginn 15. nóvember nk. kl. 14.00 heldur Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur frá París erindi í Skálholtsdómkirkju um verk íslensku listakvennanna Gerðar Helgadóttur (1928-1975) og Nínu Tryggvadóttur (1913-1968) í kirkjunni.

Fært inn 9. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Endurreisn Skálholts

Næstkomandi sunnudag, 8. nóvember, kl. 13:00 opnar sýningin Endurreisn Skálholts í Skálholtsskóla. Skúli Sæland, hönnuður sýningarinnar, verður á staðnum og leiðir fólk um sýninguna.

Fært inn 3. nóvember 2009 | Lesa áfram
Þumla færslu

Tólfspor og kyrrð

Helgina 13.-15. nóvember nk. verða haldnir kyrrðardagar hér í Skálholti undir yfirskriftinni Tólfspor og kyrrð.

Fært inn 3. nóvember 2009 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.