Endurreisn Skálholts

Sérvalin mynd

Næstkomandi sunnudag, 8. nóvember, kl. 13:00 opnar sýningin Endurreisn Skálholts í Skálholtsskóla.

Sýningin gerir grein fyrir bágu ástandi staðarins f.hl. síðustu aldar. Sveið mörgum hve lítil ræktarsemi var sýnd menningarsögu þjóðarinnar með þessu en umdeilt var með hvaða hætti ætti að endurreisa staðinn þar til samstaða náðist um viðreisn hans undir forystu dr. Sigurbjörns Einarssonar.

Sýningin verður opin fram yfir áramót, einkum á sunnudögum milli kl. 13-16, og á meðan sýningunni stendur verða haldnir fyrirlestrar um málefni er snerta viðreisn Skálholts. Verða þeir auglýstir sérstaklega.

Skúli Sæland, hönnuður sýningarinnar, verður á staðnum og leiðir fólk um sýninguna.

Meðfylgjandi ljósmynd er fengin hjá Þjóðminjasafni Íslands og sýnir Skálholt skömmu eftir 1911.