Færslur skrifaðar í desember 2009
Helgihald um jólin
Helgihald í Skálholtsdómkirkju um jólin verður sem hér segir. Verið hjartanlega velkomin!
Fært inn 15. desember 2009 | Lesa áfram
Þrettándaakademían 2010
Dagana 4.-6. janúar nk. verður haldin hina árlega Þrettándaakademía í Skálholti. Yfirskrift hennar er að þessu sinni Guðstrúin, geðið og kreppur.
Fært inn 14. desember 2009 | Lesa áfram
Aðventutónleikar í Skálholtsdómkirkju
Á laugardaginn kl. 16.00 verða haldnir aðventutónleikar allra kirkjukóra í uppsveitum Árnessýslu í Skálholtsdómkirkju. Aðgangur ókeypis!
Fært inn 11. desember 2009 | Lesa áfram
Helgileikur og séra Hjálmar Jónsson
Dagskrá gærdagsins í Skálholti var fjölbreytt. Nemendur grunnskólans sýndu helgileik og eldri borgarar í Uppsveitum Árnessýslu komu saman til að hlusta á séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest.
Fært inn 11. desember 2009 | Lesa áfram
Bandarískur prófessor sauðfjárbóndi á Íslandi
Dr. Michael Novak prófessor við Meredith College í Norður-Karólína í Bandaríkjunum var í viðtali í Fréttablaðinu í gær, en hann hefur leitt samstarf Meredith College og Skálholtsskóla vegna námsferða bandarískra stúdenta til Íslands.
Fært inn 9. desember 2009 | Lesa áfram
Kyrrðardagar 19.-21. febrúar
Næstu kyrrðardagar í Skálholti verða helgina 19.-21. febrúar nk. undir yfirskrift Þjónandi forystu. Umsjón hafa dr. Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ólafur Egilsson lögfræðingur og fyrrv. sendiherra og Harpa Hallgrímsdóttir starfsmaður Skálholtsstaðar.
Fært inn 4. desember 2009 | Lesa áfram
Feldenkrais fyrir alla!
Helgina 8.-10. janúar nk. verður haldið Feldenkrais-námskeið með kyrrðarívafi. Um er að ræða sérstakar æfingar sem byggjast á hópkennsluaðferð dr. Moshe Feldenkrais (1904-1984) sem snýst um skynjun gegnum hreyfingu. Umsjón hefur Sibyl Urbancic.
Fært inn 4. desember 2009 | Lesa áfram
Kristin íhugun og fyrirgefning
Helgina 22.-24. janúar nk. verður boðið upp á kyrrðardaga með kristinni íhugun (centering prayer) með áherslu á fyrirgefninguna og altarissakramentið. Umsjón hafa séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir djáknaefni.
Fært inn 4. desember 2009 | Lesa áfram
