Færslur skrifaðar í júlí 2010
Verslunarmannahelgin í Skálholti
Boðið verður upp á sannkallaða tónlistarveislu í Skálholti um Verslunarmannahelgina. Dagskráin hefst á fimmtudag og stendur fram á mánudag. Aðgangur ókeypis á alla tónleika.
Fært inn 27. júlí 2010 | Lesa áfram
Ný gestastofa í Skálholti
Dagskrá Skálholtshátíðar sl. sunnudag lauk með því að opnuð var ný og glæsileg gestastofa þar sem gefin er innsýn inn í meira en 950 ára sögu staðarins.
Fært inn 19. júlí 2010 | Lesa áfram
Nýr kaleikur í Skálholtsdómkirkju
Á Skálholtshátíð, 18. júlí kl. 14.00, var tekinn til notkunar nýr kaleikur í Skálholtsdómkirkju.
Fært inn 19. júlí 2010 | Lesa áfram
Minningartónleikar um Helgu Ingólfsdóttur
Dagana 22.-25. júlí verður haldin tónleikaröð í minningu Helgu Ingólfsdóttur semballeikara (1942-2009) og stofnanda Sumartónleikanna í Skálholti.
Fært inn 19. júlí 2010 | Lesa áfram
Velkomin á Skálholtshátíð 2010
Skálholtshátíð 2010 verður haldin næstu helgi, dagana 17. og 18. júlí, en hún er að vanda haldinn þann sunnudag er næstur er Þorláksmessu á sumri.
Fært inn 13. júlí 2010 | Lesa áfram
Ástralskur kór með tónleika á þriðjudag kl. 20.00
Kór St Michael´s Grammar School frá Ástralíu heldur tónleika á vegum Sumartónleikanna í Skálholtsdómkirkju þriðjudaginn 13. júlí kl. 20.00. Aðgangur ókeypis.
Fært inn 12. júlí 2010 | Lesa áfram
Skálholtsmessa eftir Hróðmar Sigurbjörnsson
Flutt verður Skálholtsmessa eftir Hróðmar Sigurbjörnsson frá kristnihátíðarárinu 2000 á Skálholtshátíð nk. laugardag, 17. júlí, kl. 15.00.
Fært inn 12. júlí 2010 | Lesa áfram
Pílagrímaganga á Skalholtshátíð
Hin árlega pílagrímaganga frá Þingvöllum til Skálholts verður gengin á Skálholtshátíð 17.-18. júlí nk. Allir velkomnir!
Fært inn 8. júlí 2010 | Lesa áfram
Dagskrá Sumartónleikanna um næstu helgi
Tónleikar með Hljómeyki á fimmtudagskvöld kl. 20.00 og á laugardag kl. 15.00. Kl. 17.00 á laugardag og 15.00 á sunndag verða sellótónleikar. Tónlistarfólk tekur þátt í guðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju á sunnudag kl. 17.00.
Fært inn 5. júlí 2010 | Lesa áframKlarup pigekor með tónleika á miðvikudag
Á miðvikudag kl. 20.00 verða tónleikar Klarup stúlknakórsins frá Danmörku í Skálholtsdómkirkju. Aðgangur ókeypis. Verið hjartanlega velkomin.
Fært inn 5. júlí 2010 | Lesa áfram
