Dagskrá Sumartónleikanna um næstu helgi

Sérvalin mynd

Á fimmtudag, 8. júlí,  verða tónleikar kl. 20.00 undir yfirskriftinni Shall I compare thee to a summer’s day? Kórverk um ástina eftir M. Lauridsen, N. Lindberg, D. Wikander, F. Poulenc, M. Ravel og C. Debussy. Sönghópurinn Hljómeyki flytur undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar.

Á laugardag, 10. júlí, kl. 15.00 frumflytur Hljómeyki tónverkið Missa Pacis eftir staðartónskáldið Sigurð Sævarsson. Þetta verk er fyrir blandaðan kór, selló, orgel og slagverk. Sigurður Halldórsson leikur á selló, Steingrímur Þórhallsson á orgel og Frank Aarnink á slagverk. Stjórnandi Magnús Ragnarsson.

Á tónleikunum kl. 17.00 þann dag flytur Sigurður Halldórsson sellóleikari og listrænn stjórnandi Sumartónleikanna einleiksdadsgkrá undir yfirskriftinni Þrjú misstillt selló. Hann spilar verk fyrir selló „scordatura“ frá ýmsum tímum
eftir D. Gabrieli, J.S. Bach og Z. Kodály. Þessi dagskrá verður endurtekin á sunnudag kl. 15.00.

Í guðsþjónustunni kl. 17.00 frumflytur Hljómeyki verk eftir Óliver Kentish og Steingrím Þórhallsson, sem jafnframt frumflytur orgelverk eftir Atla Heimisson. Prestur: sr. Egill Hallgrímsson.