Færslur skrifaðar í ágúst 2010
Skapandi forysta – Creative leadership
Laugardaginn 2. okt. nk. kl. 16-21 verður haldið námskeið í Skálholti um skapandi forystu. Skapandi forysta miðar að því að hjálpa fólki til þess að leysa úr læðingi þann sköpunarkraft sem í því býr og yfirvinna þá tálma sem koma í veg fyrir að það nái settu marki.
Fært inn 30. ágúst 2010 | Lesa áfram
Hvernig verður góð stjórnarskrá til?
Laugardaginn 28. ágúst nk. efnir Skálholtsskóli í samvinnu við áhugahóp til málþings um stjórnalagaþing. Dagskráin hefst kl. 10.00 árdegis og stefnt er að því að ljúka henni ekki seinna en 17.30.
Fært inn 20. ágúst 2010 | Lesa áfram
Fagnaðarbæn
19.–23. nóvember 2009
Þessa daga leiðir Therese Saulnier frá Contemplative Outreach Ldt. í Bandaríkjunum.
Líkaminn
18.–20. mars 2011
Við hugleiðum hina undursamlegu sköpun Guðs sem líkami okkar er.
Nærvera Guðs
24.–27. mars 2011
Þessir dagar eru ætlaðir þeim sem hafa löngun til að hvíla í nærveru Guðs og endurnærast með kristinni íhugun, hreyfingu, slökun og útiveru.
Kyrrðarvika
15.–22. maí 2011
Á þessum dögum kemur fólk saman til að stunda kristna íhugun með áherslu á kyrrðarbæn (Centering Prayer).
Kyrrðardagar fyrir konur
Dagana 15.-19. september nk. verður boðið upp á kyrrðardaga fyrir konur í Skálholti undir yfirskriftinni „Að efla líkamlegt og andlegt heilbrigði“.
Fært inn 13. ágúst 2010 | Lesa áfram
Gleði í lit
Sunnudaginn 15. ágúst verður opnuð ný málverkasýning Guðrúnar B. Ingibjartsdóttur í Skálholtsskóla. Guðrún sýnir 41 vatnslitamyndir.
Fært inn 12. ágúst 2010 | Lesa áfram
Barnakórstjóranámskeið 2010
Barnakórstjóranámskeið á vegum söngmálastjóra þjóðkirkjunnar verður haldið í Skálholti, dagana 12.–15. ágúst 2010. Leiðbeinendur verða Sigríður Eyþórsdóttir og Hörður Áskelsson.
Fært inn 11. ágúst 2010 | Lesa áfram
Organistanámskeið 2010
Söngmálastjóri stendur fyrir námskeiði fyrir organista í Skálholti dagana 23.–26. ágúst 2010. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi organista. Viðfangsefnin eru kórstjórn og raddþjálfun.
Fært inn 9. ágúst 2010 | Lesa áfram
Ítölsk og íslensk tónlist
Kórinn Libera Cantoria Pisani verður gestur Sumartónleikanna í Skálholti um næstu helgi. Þeir munu flytja ítölsk og íslensk lög frá ýmsum tímum á þremur tónleikum og í messu á sunnudag.
Fært inn 3. ágúst 2010 | Lesa áfram
Regn
Sumartónleikar: Á fimmtudaginn kemur verða tónleikar í Skálholtsdómkirkju kl. 20.00. Þeir bera yfirskriftina Regn sem er heiti á verki eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur sem verður frumflutt af þessu tilefni.
Fært inn 3. ágúst 2010 | Lesa áfram
