Framhaldsmálþing um stjórnarskrána
Málþing í Skálholti 3. október 2010:
Valddreifing – hvers vegna og hvernig?
Eftir afar vel heppnað og fjölmennt málþing um stjórnarskrána í Skálholti 28. ágúst sl. er nú ætlunin að halda framhaldsmálþing um efnið sunnudaginn 3. október nk. kl. 12-18.
Þjóðfundur um stjórnarskrá er í nánd og stutt í kosningar til Stjórnlagaþing. Eins og ykkur er í fersku minni stóð Skálholtsskóli fyrir málþingi um verklag við gerð stjórnarskrár 28. ágúst s.l. Nú er ætlunin að halda áfram þessari umræðu á vegum skólans um stjórnarskrármál og taka nú fyrir viðfangsefnið valddreifingu og spyrja spurninganna „hvers vegna?“ og „hvernig?“. Valddreifing er grundvallaratriði sem í gerð stjórnarskrár.
Viðfangsefnið er ekki einskorðað við hina hefðbundnu skiptingu stjórnvalds í löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald. Líka þarf að fjalla um vald þjóðarinnar sem er forsenda annars valds og margt fleira.
Fyrirkomulag
Málþingið er þannig upp sett að það skiptast á framsöguerindi og vinna í hópum. Stefnt er að því að það standir frá kl. 12-18. Kapp verður lagt á markvisst starf í vinnuhópunum. Stjórnendum hópanna er ætlað að undirbúa starf þeirra og tryggja markvissa vinnu. Þátttakendur skrái sig fyrir málþingið í vinnuhópa og tilgreini fyrsta og annað val, enda kann að vera nauðsynlegt að raða í hópana til að jafna samsetningu þeirra.
Hagnýt atriði
Málþingið er öllum opið og verður auglýst í fjölmiðlum en einnig með netpósti og á vefsíðum. Skráning á þingið verður á vef Skálholtsskóla.
Þátttökugjald er 3000 kr. vegna málsverðar og annara veitinga. Þá viljum við benda fólki á að samnýta bíla, eða, ef áhugi er fyrir hendi, má leigja langferðabíl til að aka frá BSÍ kl. 11.00 og til baka kl. 18.15.
Drög að dagskrá
Kl. 12:00-12:45: Erindi, fyrri hluti
- Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla setur málþingið og er jafnframt málþingsstjóri.
- Mikael M. Karlsson, prófessor: „Loksins komist á lýðræði“.
- Lilja Skaftadóttir, framkvæmdastjóri: „Að vera virkur þátttakandi“.
Kl. 12:45-13:30
Hádegisverður.
Kl. 13:30-15:00
Vinnuhópar, fyrri starfstími. Sjá upptalningu á hópum hér neðar.
Kl. 15:00-15:45 Erindi, seinni hluti
- Auðunn Arnórsson, stjórnmálafræðingur: „Beint lýðræði sem valddreifingartæki“.
- Sigurður Már Jónsson, blaðamaður: ,,Hver á að gæta varðanna?“
Kl. 15:45-16:45
Vinnuhópar, seinni starfstími.
Kl. 16:45-17:00
Kaffihlé
Kl. 17:00-18:00
Hópstjórar skýra frá niðurstöðum vinnuhópa.
Almennar umræður.
Kl. 18:00: Málþingslok
Kristinn Ólason, rektor, slítur málþinginu.
Vinnuhópar
- Vald þjóðarinnar. Hópstjóri: Geir Guðmundsson, verkfræðingur
- Þingræði eða ekki? Hópstjóri: Reynir Axelsson, dósent
- Hlutverk forseta Íslands. Hópstjóri: Þorkell Helgason, fyrrv. prófessor
- Sjálfstæði dómsvaldsins. Hópstjóri: Hjördís Hákonardóttir, fyrrv. hæstaréttardómari
- Eftirlit með valdinu. Hópstjóri: Sigþrúður Þorfinnsdóttir, lögfræðingur.


