Sumartónleikar í Skálholti fengu Eyrarrósina
Eyrarrósin 2011 var afhent í sjöunda sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær, 13. febrúar, kl. 14.00. Það var Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar, sem tikynnti að Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju hefðu fengið verðlaunin og afhenti þau í beinu framhaldi. Sigurður Halldórsson sellóleikari og listrænn stjórnandi Sumartónleikanna tók við verðlaununum ásamt Pamelu di Sensi flautuleikara sem er framkvæmdastjóri tónleikanna.
Eyrarrósin er veitt árlega fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni og var hún afhent í sjöunda sinn á Bessastöðum í febrúar næstkomandi. Eyrarrósin felur í sér fjárstyrk að upphæð kr. 1.5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Markmið með Eyrarrósinni er að stuðla að fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.
Auk Sumartónleikanna í Skálholti voru tilnefnd úr hópi umsækjenda 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum og Þórbergssetur á Hala í Suðursveit.
Á myndinni með frétt þessari er Bachsveitin í Skálholti.


