Skálholtshátíð 16.-17. júlí 2011

Sérvalin mynd

Hin árlega Skálholtshátíð verður haldin helgina 16.-17. júlí nk. Dagskrá hátíðarinnar tengist Sumartónleikum í Skálholti og aldarminningu dr. Sigurbjörns Einarssonar, biskups.

Ráðstefna

Þess verður minnst með ráðstefnu á laugardeginum, kl. 9.30–16, þar sem fjallað verður um hlutverk trúar og trúarbragða í sáttargjörð. Að ráðstefnunni stendur Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar í trúarbragðafræðum. Byggist ráðstefnan að hluta til á guðfræðilegri gagnrýni Sigurbjörns á þriðja ríki Hitlers. 

Aðalfyrirlesarar málþingsins verða dr. Magnús Þorkell Bernharðsson og dr. Susannah Heschel.  Viðbrögð veita dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson og Árni Bergmann. Formaður stjórnar Stofnunar dr. Sigurbjörns er Bogi Ágústsson, fréttamaður.  Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna (hér fyrir neðan). Ráðstefnugjald er kr. 3.500.- og er innifalinn hádegisverður og kaffihlaðborð.

Tónleikar

Kl. 17.00 eru tónleikar í Skálholtskirkju á vegum Sumartónleika. Íslenski flautukórinn flytur verk eftir innlenda og erlenda höfunda ásamt Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara og Steingrími Þórhallssyni organista. Sjá nánar á www.sumartonleikar.is.

Hátíðarguðsþjónusta

Sunnudaginn kl. 14.00 verður hátíðarmessa. Fyrir messu verður á kirkjuhlaðinu tekið á móti göngufólki, pílagrímum, sem ganga frá Þingvöllum í Skálholt. Biskup Íslands  prédikar, séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup, þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti, séra Agli Hallgrímssyni og séra Kristni Ólasyni, rektor. Skálholtskórinn syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar, organista. Eftir messu er kirkjukaffi í Skálholtsskóla.

Pílagrímaganga

Pílagrímagangan hefst kl. 10.00 á laugardegi með fararblessun staðarprests í Þingvallakirkju, séra Kristjáns Vals Ingólfssonar. Farangur verður fluttur fyrir fólk frá Þingvöllum að Laugarvatni. Að þessu sinni verður gist í svefnpokagistingu í Farfuglaheimilinu á Laugarvatni (840 Laugarvatn) gegn vægu gjaldi. Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að velja og panta gistinguna beint með tölvupósti á netfangið laugarvatn@hostel.is. Einnig verður boðið upp á sameiginlegan kvöldverð í húsinu gegn vægu gjaldi. Göngunni er fram haldið á sunnudagsmorgni frá Neðra-Apavatni kl. 9.00 og er gengið sem leið liggur að Skálholti til hátíðarguðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju. Hægt hefur verið að koma inn í gönguna á ýmsum stöðum og ganga aðeins hluta hennar. Göngustjórar eru sr. Elínborg Sturludóttir, Anna Ingólfsdóttir og Björn Erlingsson.

Tónleikar

Kl. 17.00 á sunnudag eru tónleikar í Skálholtskirkju á vegum Sumartónleika. Skálholtskvartettinn flytur verk eftir Schubert og Haydn á 15 ára starfsafmæli sínu. Sjá nánar á heimasíðu Sumartónleika. 

Kvöldtíðir verða í Skálholtsdómkirkju kl. 18.00 á föstudagskvöldið, undir stjórn Glúms Gylfasonar, fv. organista Selfosskirkju. Morguntíðir eru svo á laugardag og sunnudag kl. 9.00.

Allir hjartanlega velkomnir!

[contact-form 404 "Not Found"]