Glæsileg dagskrá um helgina

Sérvalin mynd

Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju hefjast að þessu sinni með erindi Halldórs Haukssonar í Skálholtsskóla kl. 14.00.

Þá verður boðið upp á tónleika undir yfirskriftinni Í örmum draums kl. 15.00 þar sem flutt verður Sónhenda LXXVII eftir Hafliða Hallgrímsson við ljóð Micheangelo í þýðingu Þorsteins Gylfasonar í minningu Helgu Ingólfsdóttur (frumfl.). Þar að auki verður flutt Kantata 156 Ich steh mit einem Fuss im Grabe og mótetturnar Der Geist hilft og Singet. Flytjendur eru Schola Cantorum og félagar úr Alþjóðlegu barokksveitinni í Haag. Leiðari er Tuomo Suni. Stjórnandi: Hörður Áskelsson

Þá mun hinn virti semballeikari Jacques Ogg halda tónleika á opnunardeginum í boði Minningarsjóðs Helgu Ingólfsdóttur. Jacques mun leika verk eftir Froberger, Frescobaldi, Weckmann, Muffat og Forqueray, sem spanna 100 ára gullöld sembalsins, frá u.þ.b. 1650 til 1750. Tónleikar hans verða laugardaginn 2. júlí kl. 17:00, og verða þeir endurteknir sunnudaginn 3. júlí kl. 15:00.

Boðið er upp á glæsilegt kaffihlaðborð í Skálholtsskóla á milli tónleika (kl. 16-17) á aðeins kr. 1500.- á mann.

Verið hjartanlega velkomin.