Fjórða helgi Sumartónleikanna
Í þessari viku mun kvartett spila ítalska tónlist frá 17. öld eftir Stradella, Lonati, Gabrieli og tríósónötur eftir Händel. Þessir tónleikar eru á dagskrá á fimmtudagskvöld (21.7) kl. 20.00. Kvartettinn skipa Jaap Schröder fiðluleikari, Martial Nardeau flautuleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Peter Watchorn orgel- og semballeikari.
Á laugardag (23.7) kl. 14.00 flytur Elín Gunnlaugsdóttir staðartónskáld fyrirlestur í Skálholtsskóla.
Í beinu framhaldi flytur CAPUT hópurinn ný verk eftir Elínu og Toshio Hosokawa og Ysang Yun á tónleikum í Skálholtsdómkirkju kl. 15.00. Yfirskrift tónleikanna er Þangað sem árnar renna munu þær ávallt renna. CAPUT hópinn skipa Eydís Franzdóttir óbó, Kolbeinn Bjarnason flauta, Guðni Franzson klarinett, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Svava Bernharðsdóttir víóla, Sigurður Halldórsson selló, Dean Ferrell kontrabassi, Guðrún Óskarsdóttir semball og Frank Aarnink slagverk. Þessir tónleikar verða endurteknir á sunnudag kl. 15.00.
Á laugardag verða einnig tónleikar kl. 17.00 undir yfirskriftinni Rossini og Gissur. Þar mun Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari syngja aríur og kammerverk eftir Rossini og samtíðarmenn hans. Hljóðfæraleik annast Steingrímur Þórhallsson orgel, Jaap Schröder fiðla, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Sigurður Halldórsson selló og Dean Ferrell kontrabassi.
Við minnum á kaffihlaðborðið okkar á milli tónleika á laugardag og milli tónleika og messu á sunnudag kl. 15-16. Verð aðeins kr. 1500.-
Verið hjartanlega velkomin á tónleika í Skálholti.
- Steingrímur Þórhallsson
- Sigurður Halldórsson
- Jaap Schröder
- Gissur Páll Gissurarson






