Færslur skrifaðar í ágúst 2011

Þumla færslu

Prófessor Andrew Louth í Skálholti

Dagana 12.-13. september nk. heldur dr. Andrew Louth prófessor emerítus í kirkjufeðrunum og býsönskum fræðum við Durhamháskóla námskeið fyrir presta og guðfræðinga í Skálholti. Námskeiðinu var frestað í lok maí vegna eldgoss í Grímsvötnum.

Fært inn 27. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Tónleikar á þriðjudagskvöld

Þriðjudaginn 23. ágúst kl. 20.00 heldur Eva Mjöll Ingólfsdóttir fiðluleikari frá New York tónleika í Skálholtsdómkirkju ásamt dóttur sinni Andreu Kristinsdóttur. Verið hjartanlega velkomin!

Fært inn 22. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Sjö spor til betri vegar

21.–23. október 2011
Nýstárlegt námskeið um gildin í lífinu og kjarnann í meginreglum mannkyns. Veitt verður innsýn í sjö reglur sem geta skapað hið góða líf.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kyrrðardagar á aðventu

2.–4. desember 2011
Kyrrðardagar fyrstu helgina í desember með áherslu á hreyfingu, slökun og kyrrð.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Feldenkrais-námskeið

5.–8. janúar 2012
Feldenkrais-námskeið með kyrrðarívafi byggist á hópkennsluaðferð dr. Moshe Feldenkrais (1904–1984) sem snýst um skynjun gegnum hreyfingu.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Þín svör fyrir þitt líf

9.–12. febrúar 2012
Á þessum kyrrðardögum munum við vinna markvisst að því að leysa úr læðingi okkar innri kraft og kjark til að takast á við okkar eigið líf.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Fyrirgefningin

23.–26. febrúar 2012
Á þessum kyrrðardögum verður boðið upp á leiðsögn í hinni kristnu íhugunaraðferð Centering Prayer. Sérstök áhersla verður lögð á fyrirgefninguna og altarissakramentið.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Tólfspor og kyrrð

16.–18. mars 2012
Leið tólfsporanna er jafnt vitsmunaleg sem andleg og á þessum kyrrðardögum verður áhersla lögð á þau spor sem lúta að andlegri vegferð manneskjunnar.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Qi Gong með kyrrðarívafi

23.–25. mars 2012
Gunnar Eyjólfsson leikari og Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, leiða kyrrðardaga sem byggjast á aðferðafræði Qi Gong.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Kyrrðardagar í dymbilviku

4.–7. apríl 2012
Atburðir kyrruviku verða áberandi í hugleiðingum og helgihaldi þessara kyrrðardaga. Dagskráin hefst á miðvikudagskvöldi og henni lýkur um hádegi á laugardag.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Biblíuleg íhugun

12.–15. apríl 2012
Þessa helgi verður boðið upp á leiðsögn í hinni kristnu íhugunaraðferð Centering Prayer með áherslu á biblíulega íhugun (Lectio divina).

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Heilsudagar -Hið góða líf

20.–22. apríl 2012
Á þessum dögum verður boðið upp á kynningu og fræðslu á hráfæði og heilsu­drykkjum. Lögð er áhersla á hreyfingu og slökun með hollu lífrænu fæði.

Fært inn 20. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Málþing um taflmennina frá Ljóðhúsum 19. ágúst nk.

Föstudaginn 19. ágúst verður haldið málþing í Skálholti þar sem fjallað verður um taflmennina sem fundust árið 1831 á eyjunni Lewis eða Ljóðhúsum eins og eyjan er jafnan nefnd í fornum íslenskum heimildum.

Fært inn 18. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Þakkargjörðarmessa á alþjóðlegu ári skóganna

Sunnudaginn 14. ágúst kl. 14:00 verður messa í Skálholtsdómkirkju þar sem skógræktendur og skógunnendur safnast saman til þakkargjörðar.

Fært inn 8. ágúst 2011 | Lesa áfram
Þumla færslu

Opið hús á laugardag

Sl. laugardag buðu Sumartónleikar í Skálholti og Skálholtsstaður í opið hús frá kl. 13.00 til kl. 18.00. Margt var í boði, ekki síst fyrir börnin, hestbak, tónlist og hljóðfærasmiðja, leikir, ísbíll o.fl. og var fjölmenni á staðnum í afar fallegu veðri.

Fært inn 2. ágúst 2011 | Lesa áfram
  • Annað efni

  • www.flickr.com
    Þetta er sýnishorn af myndum á Flickr sem merktar hafa verið Skálholti.