Málþing um taflmennina frá Ljóðhúsum 19. ágúst nk.

Sérvalin mynd

Föstudaginn 19. ágúst verður haldið málþing í Skálholti þar sem fjallað verður um taflmennina sem fundust árið 1831 á eyjunni Lewis eða Ljóðhúsum eins og eyjan er jafnan nefnd í fornum íslenskum heimildum. 

Í bæklingum British Museum kemur m.a. fram að líklegt sé að taflmennirnir séu gerðir í Þrándheimi í Noregi, en enginn þekkir uppruna þeirra. Getgátur nefna Ísland, Noreg eða Skandinavíu, Skotland, Írland eða England. Þeir eru flestir skornir úr rostungstönnum (nokkrir úr hvaltönnum) og taldir gerðir einhvern tíma á árunum 1150 til 1200. Eins og fram hefur komið, m.a. á þessari heimasíðu, hefur Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sett fram þá kenningu að taflmennirnir hafiu verið gerðir í Skálholti á sinni tíð. Hann nefnir í því sambandi sem mögulegan höfund Margréti hina högu, en hennar er sérstaklega getið í Pálssögu.

Enginn þekkir nú nákvæmlega fundarstað taflmannanna. Taflmenn þessir, sem taldir eru elstu taflmenn er fundist hafa í veröldinni með svipmót nútíma taflmanna, eru meðal merkustu muna British Museum. Hefur safnið gefið út vandaða bæklinga og DVD disk með upplýsingum um þá, enda eru þeir meðal vinsælustu sýningarmuna þess. Jafnframt hefur safnið látið gera eftirmyndir af taflmönnunum sem boðnar eru til sölu. Þessi vönduðu verk safnsins eru hvatinn að eftirfarandi greinaskrifum. Taflmennirnir eru taldir þeir fyrstu sem taka á sig mynd manna og elstu taflmenn sem fundist hafa með biskup sem einn mannanna.

Í ár er 800 ára ártíð Páls biskups Jónssonar (1155-1211), en steinkista hans fannst við uppgröft í Skálholti 21. ágúst 1954. Málþingið er m.a. haldið af þessu tilefni. Páll biskup var sonur Jóns Loftssonar í Odda og Ragnheiðar Þórhallsdóttur, systur Þorláks biskups helga, og eftirmaður hans á biskupsstóli.

Tveir Breskir fræðimenn, dr. James Robinson frá Breska þjóðminjasafninu og dr. David H. Caldwell frá því skoska, munu tala á málþinginu auk fjögurra íslenskra fræðimanna. Málþingið, sem stendur frá kl. 10-17,  fer fram á ensku og eru allir velkomnir. Skráning fer fram í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is. Sjá nánar á www.leit.is/lewis

Ráðstefnugjald er aðeins kr. 4.500.- og er innifalið í gjaldinu hádegisverður og veitingar í kaffihléi. Þá verður boðið upp á miðaldarkvöldverð í Skálholti kl. 17.30. Verð kr. 6.200.- Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan og takið þá endilega fram hvort þið viljið vera með í kvöldverðinum.

Þá er einnig hægt að kaupa gistingu fram á laugardag en hún kostar kr. 8.500.- í tveggjamannaherbergi með morgunverði. 

[contact-form 404 "Not Found"]