Tónleikar í Skálholtskirkju í maí
Skálholtskirkja er opin alla daga frá kl. 9:00 til 18:00 :: Messað er alla sunnudaga kl. 11:00
- 27. apr. 2024, 16:00 – 17:00Skálholtskirkja, 806, Ísland"Þér birtist vor á ný" Kirkjukór Hvammstanga og Vörðukórinn efna til sameiginlegra tónleika í Skálholtskirkju laugardaginn 27.apríl 2024 kl 16.00 Kórarnir munu flytja saman og í sitthvoru lagi fjölbreytta dagskrá íslenskra og erlendra söngperla. Miðaverð 4000 kr og miðasala við innganginn.
- 03. maí 2024, 18:00 – 19:30Skálholtsdómkirkja, Skálholtskirkja, 806, ÍslandÞær Ása og Ásta Soffía flytja dægurflugur og þekkta tangóslegna slagara eftir marga íslenska þekkta lagahöfunda. Harmonikka og söngur! Miðaverð 2500 kr - miðasala á tix.is og við innganginn. Allur aðgangseyrir rennur í Flygilsjóð Skálholtskirkju. https://tix.is/is/event/17394/asa-og-asta-soffia-d
- 04. maí 2024, 09:30 – 12:00Skálholt, SkálholtsbúðirFugla- og fræðsluganga um Skálholtstungu með Tómasi Grétari Gunnarssyni fuglafræðingi. Gengið er um Skálholtstungu og fuglalífið skoðað. Kristján Björnsson Vígslubiskup verður með í för og fræðir gesti um sögu Skálholtsstaðar. Gangan hefst við Skálholtsbúðir og gengið verður niður Skálholtstungu.
- 05. maí 2024, 13:00 – 14:00Skálholtskirkja, 806, ÍslandSellósveitin RÚNA er áhugamannasveit sem starfar við Tónskóla Sigursveins undir stjórn Kristínar Lárusdóttur. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt allt frá klassískum verkum og barrokki í rokk og spuna. Leynigestir troða upp! Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda sannkölluð Sellóveisla!
- 08. maí 2024, 18:00 – 19:30Skálholtsdómkirkja, SkálholtGönguleiðin um Þorláksleið hefur nú verið vörðuð gönguleiðaskiltum og mun Kristján Björnsson Vígslubiskup ganga hluta leiðarinnar með gesti og fara yfir sögu heilags Þorláks Þórhallssonar biskups í Skálholti. Gangan hefst við Skálholtskirkju miðvikudaginn 8. maí kl 18:00 og er öllum opin.
- 11. maí 2024, 13:30 – 17:00Skálholtskirkja, 806, ÍslandSamsöngur kóra eldri borgara verður haldinn í Skálholtskirkju laugardaginn 11. maí nk kl 13:30 - 17:00. Gestgjafi er kórinn Tvennir tímar sem er kór Eldri borgara í Uppsveitum Árnessýslu. Stjórnandi þeirra er Stefán Þorleifsson. Samsöngurinn er öllum opinn og ókeypis.
- 15. maí 2024, 18:00 – 19:00SkálholtskirkjaRagnheiðarganga í Skálholti miðvikudaginn 15. maí kl 18:00 - Aðgangur ókeypis - öll velkomin! Ragnheiður Brynjólfsdóttir er ein af stóru sögupersónum Skálholtsstaðar. Friðrik Erlingsson þekkir sögu hennar einna best og skrifaði handrit að óperu Ragnheiðar sem frumsýnd var í Skálholti.
- 22. maí 2024, 18:00 – 19:00SkálholtskirkjaBjarni Harðarsson leiðir göngu um Skálholtsstað miðvikudaginn 22. maí kl 18:00 - Safnast verður við kirkjuna og gengið um Skálholtsstað og farið yfir sögu og sögupersónur Skálholtsstaðar. Bjarni Harðar er þekktur sagnamaður en hann þekkir sögu Skálholtsstaðar mjög vel.
- 29. maí 2024, 18:00 – 19:30Skálholtsdómkirkja, Skálholt,Halldóra Kristinsdóttir sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands fræðir gesti um Valgerði Jónsdóttur biskupsfrú sem bjó í Skálholti á 18. öld. Viðburðurinn verður haldinn í Skálholtskirkju miðvikudaginn 29. maí nk kl 18:00. Viðburðurinn er ókeypis og öll velkomin.
Næstu viðburðir
Þjónusta
Heimsókn í Skálholt
Skálholt er einn mesti sögustaður Íslands og biskupssetur síðan 1056. Í kjallara kirkjunnar er sýning með gripum og sögubrotum. Hægt er að bóka stutta og langa staðarskoðun fyrir hópa og einstaklinga allt árið með leiðsögn um svæðið.
Veitingar
Veitingastaðurinn Hvönn í Skálholti er frábær staður til að stoppa til að borða á Gullna hringnum. Á Hvönn er lögð áhersla á notalegt umhverfi á fallegum sögulegum stað. Boðið er upp á hefðbundnar veitingar með með nútímalegum áherslum.
Gisting
Hótel Skálholt býður upp á fjölbreytta og notalega gistingu á miðjum Gullna hringnum. Stutt er í allar áttir og tilvalið að skreppa í dagsferðir úr Skálholti.
Gistu á einum sögufrægasta stað landsins í fallegu umhverfi.
Skálholtskirkja
Skálholtskirkja er opin alla daga ársins frá kl. 9 til 18 og messur eru alla sunnudagsmorgna kl. 11:00.
Skálholtsdómkirkja var vígð 1963 og er hún tíunda kirkjan sem stendur þar á sama stað. Sú fyrsta var reist skömmu eftir árið 1000 þegar Íslendingar tóku kristni.
Fréttir
- 1 day ago
Fræðslugöngur í Skálholti í maí
- 2 days ago
Menning á miðvikudögum í maí
Áhugaverð ártöl
1000
Íslendingar urðu kristin þjóð sumarið 1000 og skömmu síðar var fyrsta kirkjan byggð í Skálholti
1193
Dánardagur Þorláks helga
1550
Jón Arason og synir hans teknir af lífi í Skáholti. Atburðurinn markaði upphaf siðaskipta á Íslandi.
1947
Þetta ár voru fyrstu drög lögð að endurreisn Skálholtstaðar. Ný Skálholtskirkja var vígð 16 árum síðar.
Styttu þér leið
Viðtalstímar
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Sóknarprestur:
Axel Á Njarðvík
S. 856 1574
Vígslubiskup:
Sr. Kristján Björnsson
S. 856 1592
Organisti:
Jón Bjarnason
S. 691 8321
Opnunartímar
Skálholtskirkja er opin alla daga 9:00 - 18:00