Vor í Skálholti
Skálholtskirkja er opin alla daga frá kl. 9:00 til 18:00 :: Messað er alla sunnudaga kl. 11:00
- 24. apr. 2024, 18:00 – 19:30Skálholt, Skálholtskirkja, 806, IcelandKór Menntaskólans að Laugarvatni býður upp á tvenna tónleika miðvikudaignn 24. apríl nk. Annarsvegar kl 18:00 og hinsvegar kl 20:30. Kórinn syngur nokkur fjölbreytt lög sem ættu að koma öllum í sumarskap og ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
- 27. apr. 2024, 16:00 – 17:00Skálholtskirkja, 806, Ísland"Þér birtist vor á ný" Kirkjukór Hvammstanga og Vörðukórinn efna til sameiginlegra tónleika í Skálholtskirkju laugardaginn 27.apríl 2024 kl 16.00 Kórarnir munu flytja saman og í sitthvoru lagi fjölbreytta dagskrá íslenskra og erlendra söngperla. Miðaverð 4000 kr og miðasala við innganginn.
- 03. maí 2024, 18:00 – 19:30Skálholtsdómkirkja, Skálholtskirkja, 806, ÍslandÞær Ása og Ásta Soffía flytja dægurflugur og þekkta tangóslegna slagara eftir marga íslenska þekkta lagahöfunda. Harmonikka og söngur! Miðaverð 2500 kr - miðasala á tix.is og við innganginn. Allur aðgangseyrir rennur í Flygilsjóð Skálholtskirkju.
- 04. maí 2024, 09:30 – 12:00Skálholt, SkálholtsbúðirFugla- og fræðsluganga um Skálholtstungu með Tómasi Grétari Gunnarssyni fuglafræðingi. Gengið er um Skálholtstungu og fuglalífið skoðað. Kristján Björnsson Vígslubiskup verður með í för og fræðir gesti um sögu Skálholtsstaðar. Gangan hefst við Skálholtsbúðir og gengið verður niður Skálholtstungu.
- 05. maí 2024, 13:00 – 14:00Skálholtskirkja, 806, ÍslandSellósveitin RÚNA er áhugamannasveit sem starfar við Tónskóla Sigursveins undir stjórn Kristínar Lárusdóttur. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt allt frá klassískum verkum og barrokki í rokk og spuna. Leynigestir troða upp! Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda sannkölluð Sellóveisla!
- 11. maí 2024, 13:30 – 17:00Skálholtskirkja, 806, ÍslandSamsöngur kóra eldri borgara verður haldinn í Skálholtskirkju laugardaginn 11. maí nk kl 13:30 - 17:00. Gestgjafi er kórinn Tvennir tímar sem er kór Eldri borgara í Uppsveitum Árnessýslu. Stjórnandi þeirra er Stefán Þorleifsson. Samsöngurinn er öllum opinn og ókeypis.
- 15. maí 2024, 18:00 – 19:00SkálholtskirkjaRagnheiðarganga í Skálholti miðvikudaginn 15. maí kl 18:00 - Aðgangur ókeypis - öll velkomin! Ragnheiður Brynjólfsdóttir er ein af stóru sögupersónum Skálholtsstaðar. Friðrik Erlingsson þekkir sögu hennar einna best og skrifaði handrit að óperu Ragnheiðar sem frumsýnd var í Skálholti.
- 22. maí 2024, 18:00 – 19:00SkálholtskirkjaBjarni Harðarsson leiðir göngu um Skálholtsstað miðvikudaginn 22. maí kl 18:00 - Safnast verður við kirkjuna og gengið um Skálholtsstað og farið yfir sögu og sögupersónur Skálholtsstaðar. Bjarni Harðar er þekktur sagnamaður en hann þekkir sögu Skálholtsstaðar mjög vel.
Næstu viðburðir
Þjónusta
Heimsókn í Skálholt
Skálholt er einn mesti sögustaður Íslands og biskupssetur síðan 1056. Í kjallara kirkjunnar er sýning með gripum og sögubrotum. Hægt er að bóka stutta og langa staðarskoðun fyrir hópa og einstaklinga allt árið með leiðsögn um svæðið.
Veitingar
Veitingastaðurinn Hvönn í Skálholti er frábær staður til að stoppa til að borða á Gullna hringnum. Á Hvönn er lögð áhersla á notalegt umhverfi á fallegum sögulegum stað. Boðið er upp á hefðbundnar veitingar með með nútímalegum áherslum.
Gisting
Hótel Skálholt býður upp á fjölbreytta og notalega gistingu á miðjum Gullna hringnum. Stutt er í allar áttir og tilvalið að skreppa í dagsferðir úr Skálholti.
Gistu á einum sögufrægasta stað landsins í fallegu umhverfi.
Skálholtskirkja
Skálholtskirkja er opin alla daga ársins frá kl. 9 til 18 og messur eru alla sunnudagsmorgna kl. 11:00.
Skálholtsdómkirkja var vígð 1963 og er hún tíunda kirkjan sem stendur þar á sama stað. Sú fyrsta var reist skömmu eftir árið 1000 þegar Íslendingar tóku kristni.
Fréttir
- 4 days ago
Vortónleikar Vörðukórsins
- 4 days ago
Forseti Íslands flytur hátíðarerindi á Skálholtshátíð
Áhugaverð ártöl
1000
Íslendingar urðu kristin þjóð sumarið 1000 og skömmu síðar var fyrsta kirkjan byggð í Skálholti
1193
Dánardagur Þorláks helga
1550
Jón Arason og synir hans teknir af lífi í Skáholti. Atburðurinn markaði upphaf siðaskipta á Íslandi.
1947
Þetta ár voru fyrstu drög lögð að endurreisn Skálholtstaðar. Ný Skálholtskirkja var vígð 16 árum síðar.
Styttu þér leið
Viðtalstímar
Viðtalstímar eru eftir samkomulagi.
Sóknarprestur:
Axel Á Njarðvík
S. 856 1574
Vígslubiskup:
Sr. Kristján Björnsson
S. 856 1592
Organisti:
Jón Bjarnason
S. 691 8321
Opnunartímar
Skálholtskirkja er opin alla daga 9:00 - 18:00