Hér má finna almennar upplýsingar um pílagrímagöngur frá Þingvöllum til Skálholts. Síðasta ganga var á dagskrá á Skálholtshátíð helgina 16.-17. júlí sl. Kort af leiðinni neðst á síðunni!
Pílagrímagöngur eru hluti af hinum kristna menningararfi. Þeir sem ferðast til heilagra staða eru kallaðir pílagrímar. Þetta orð er komið úr miðaldalatínu (pelegrinus) en á rætur í klassískri latínu (peregrinus, útlendingur). Slíkar göngur eru farnar af misjöfnum ástæðum; í þakkargjörð, í yfirbótarskyni eða af trúarlegum og/eða menningarlegum áhuga. Gengið er í áföngum en hlé eru notuð til bænahalds, ritningarlesturs eða til íhugunar og kyrrðar.
Síðustu sjö ár hefur verið gengin pílagrímaganga frá Þingvöllum að Skálholti á Skálholtshátíð sem haldin er árlega í kring um Þorláksmessu að sumri 20. júlí. Gangan hefst kl. 10 á laugardegi með fararblessun staðarprests í Þingvallakirkju sem séra Kristján Valur Ingólfsson annast. Farangur verður fluttur fyrir fólk frá Þingvöllum að Laugarvatni. Dagskrá laugardagsins endar með kvöldsöng við Vígðulaug á Laugarvatni, þar sem hægt hefur verið að fara í heitan pott og gufubað fyrir svefninn.
Að þessu sinni verður gist í svefnpokagistingu í Farfuglaheimilinu (Laugarvatn Hostel, þ.e. Farfuglaheimilið Laugarvatni, 840 Laugarvatn) gegn vægu gjaldi. Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að velja og panta gistinguna beint með tölvupósti á netfangið laugarvatn@hostel.is. Öll herbergi í húsinu eru með sameiginlegu baði og er hægt að sjá verðskrá á vefsíðunni www.laugarvatnhostel.is. Þá verður boðið upp á sameiginlegan kvöldverð í húsinu á aðeins 2000.- kr. Boðið verður upp á kjötsúpu, brauð bakað í hvernum á Laugarvatni og reiktan silung eða lax sem álegg. Kaffi og te á eftir. Fólk er beðið um að geta þess sérstaklega í pöntun hvort það ætlar að þiggja kvöldverðinn.
Göngunni er fram haldið á sunnudagsmorgni frá Neðra-Apavatni kl. 9.00 og er gengið sem leið liggur að Skálholti til hátíðarguðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju kl. 14.00. Hægt hefur verið að koma inn í gönguna á ýmsum stöðum og ganga aðeins hluta hennar en vera fullgildur pílagrímur á Skálholtshátíð. Margir hafa sameinast henni við Vellankötlu á laugardeginum upp úr kl. 11.00 eða við vörðuna þar sem göngufólk fer út af veginum yfir Lyngdalsheiði um kl. 12.30, við Neðra Apavatn á sunnudeginum kl. 9.00, við veginn undir Mosfelli um kl. 12.30 eða við Spóastaði kl. 13.15.
Göngustjórar verða þau sr. Elínborg Sturludóttir, Anna Ingólfsdóttir jógakennari og Björn Erlingsson. Hópmyndin hér fyrir ofan er tekin úr göngunni 2008.
Sérstakur undirbúnings- og kynningarfundur verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu föstudaginn 15. júlí kl. 16.30.
Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar í göngunni 16.-17. júlí.:
Hér fyrir neðan má sjá kort af gönguleiðinni.







