top of page
vetur.jpg

Skálholtsdómkirkja

Skálholtsdómkirkja var vígð 1963 og er hún tíunda kirkjan sem stendur þar á sama stað. Sú fyrsta var reist skömmu eftir árið 1000 þegar Íslendingar tóku kristni. Áður en núverandi sóknarkirkja var reist fóru fram merkilegar fornleifarannsóknir á staðnum undir stjórn dr. Kristjáns Eldjárn sem síðar varð forseti Íslands. Fannst þá m.a. steinkista Páls biskups Jónssonar sem jarðsettur var árið 1211 og er hún talin einhver merkilegasti fornleifafundur Íslandssögunnar.

Í Skálholtsdómkirkju er að finna einhver merkilegustu listaverk 20. aldar á Íslandi; steindir gluggar Gerðar Helgadóttur og altaristafla Nínu Tryggvadóttur auk muna úr þeirri kirkju sem Brynjólfur Sveinsson biskup reisti 1650.

Hljómburður Í Skálholtdómkirkju þykir einstakur, jafnvel á heimsvísu og eru reglulega haldnir þar tónleikar. Hápunktur tónleikahalds eru Sumartónleikar í Skálholti sem haldnir eru í júlí ár hvert allt frá árinu 1975.  

Skálholtsdómkirkja

Gluggar Gerðar Helgadóttur

Steindir glergluggar Skálholtskirkju eru eftir listakonuna Gerði Helgadóttur (1928-1975) vísa m.a. til sögu biskupsstólsins og píslarsögu Krists. Þau eru einhver fegurstu og dýrmætustu listaverk sem er að vinna í íslenskri kirkju.

Altaristafla Nínu Tryggvadóttur

Altaristaflan í Skálholtskirkju er eftir listakonuna Nínu Tryggvadóttur (1913-1968). Hugmynd nínu var að altaristaflan ætti að tákna hálf loftkennda myndKrists birtast sem einskonar anda í íslensku Sumarlandslagi. Listaverkið er úr mósaík og var sett upp árið 1966. Verkið er eitthvert fegursta og dýrmætasta listaverk sem er að finna í íslenskri kirkju.

Gripir í Skálholtskirkju

Inni í kirkjunni eru gripir, frá 17. öld. Þar eru altari, stjakar og predikunarstóll úr síðustu dómkirkjunni, altari Brynjólfs biskups Sveinssonar og predikunarstóll meistara Jóns Vídalíns.

Arkitektúr

Húsameistari ríkisins Hörður Bjarnason er arkitekt Skálholtskirkju sem er einstaklega glæsileg í einfaldleik sínum.  Í útfærslu sinni á Skálholtskirkju hafði Hörður hliðsjón af Brynjólfskirkju, krosslögð með þverskipi og hliðarskipum.  

Safnið í kjallara kirkjunnar

Safnið í kjallara kirkjunnar geymir ýmsa muni sem fundust við fornleifauppgröftinn 1954 - 58. Þar á meðal steinkistu Páls Jónssonar og undirgöng milli kirkjunnar og miðaldaþorpsins.

Þorláksbúð

Þorláksbúð er talin reist eftir kirkjubruna í biskups tíð Ögmundar Páls sonar. Ögmundur var sem kunnugt er síðasti kaþólski biskupinn og var í hans tíð messað í húsi þessu meðan ný kirkja var í byggingu.

Framkvæmdir á kirkjunni

Skálholtskirkja hefur hlotið gagngera yfirhalningu árin 2022 og 2023. Farið var yfir allt ytra og innra byrði kirkjunnar á þessum tíma. 

Kirkjuklukkurnar

Í turni Skálholtskirkju eru fimm  kirkjuklukkur sem gefnar voru til kirkjunnar á byggingartímanum, ein frá Danmörku, tvær frá Svíþjóð, ein frá Finnlandi og ein frá Noregi. 

Bókasafnið í kirkjuturninum

Í turni Skálholtskirkju er geymt merkilegt og gott safn um elsta prent á Íslandi. Í safninu er að finna eintök flestra þeirra bóka sem prentaðar voru á Íslandi frá lokum 16. aldar til upphafs 19. aldar. 

Gjafir til kirkjunnar

Kirkjan hefur fengið margar verðmætar gjafir frá Norðurlöndunum. Kirkjuklukkur, orgel, steindir glergluggar og skírnarfontur eru dæmi um gjafir til kirkjunnar.

bottom of page