Um skólann

Kirkjuleg fræðslu- og menntastofnun

„Það er enginn skóli lengur í Skálholti“, heyrist stundum sagt, því að ekki er lengur venjubundið formlegt skólahald eins og verið hefur um aldir. Því var breytt með lögum árið 1992 og nú starfar skólinn í opnu formi sem kirkjulegt fræðslu- og menntunarsetur sem býður alla velkomna til þátttöku. Skólinn hefur þannig aðlagað sig að nýjum aðstæðum og þörfum kirkju og samfélags.

Séð yfir Skálholt

Starf Skálholtsskóla

Skálholtsskóli byggist að sjálfsögðu á kirkjulegri, kristinni hefð og er í anda hinnar norrænu lýðháskólahefðar. Still hans mótast af samveru fólks sem kemur saman til að fræðast og miðla þekkingu sinni, vinna saman verkefni og þjálfast í ýmsum greinum, njóta lista, blanda geði við aðra, hvílast og uppbyggjast við helgihaldið.

Starf Skálholtsskóla er að sjálfsögðu samtengt þeim atburðum öðrum sem eiga sér stað í Skálholtskirkju og Skálholtsbúðum. Hefðbundið starf hans er margvíslegt; málþing um siðferðileg álitaefni, fermingarnámskeið, ráðstefur sérfræðinga vinnufundir fyrirtækja og stofnana, kyrrðardagar, orlofsdagar eldri borgara, námskeið háskólanema, fræðslunámskeið kóra og starfsfólks safnaða, þrettándaakademía presta, erlendir ferðahópar í söguskoðun og heimsóknir einstaklinga sem miðla af sérstakri reynslu. En skólinn er opinn fyrir nýjungum í starfi og fagnar öðrum aðilum til samstarfs sem vilja brydda upp á öðrum verkefnum, sem falla að stefnu skólans.

Móttaka gesta

Gestrisni hefur alltaf einkennt Skálholtsstað og Skálholtsskóli býður upp á menningartengda ferðaþjónustu. Gisting af ýmsum verðflokkum er til reiðu og heimilislegur matur. Boðið er upp á staðarskoðun í ljósi sögunnar og í framhaldi af því eru í boði máltíðir að hætti fyrri tíðar; 17. aldar kvöldverður að hætti Þórðar biskups Þorlákssonar eða miðaldakvöldverður að hætti Þorláks helga ( +1178).

Skálholt er í fögru umhverfi, útsýni til Heklu en Gullfoss og Geysir í sömu sveit. Skammt undan eru sundlaugar, golfvellir, hestaleigur, veiðiár og góðar gönguleiðir.