top of page
Peter Fisher_Altari.jpg

Flygilsjóður Skálholtsdómkirkju

Tekið er á móti frjálsum framlögum í flygisjóð Skálholtsdómkirkju

Söfnun í Flygilsjóð Skálholtsdómkirkju er nú í fullu gangi.  Þegar hefur safnast vænn sjóður, aðallega frá Kirkjusjóð Laugarvatns en einnig með frjálsum framlögum sveitunga og tónleikagesta, og eru nú rúmar 6 milljónir í sjóðnum. Stefnt er að því að kaupa flygil í hæsta gæðaflokki í kirkjuna og því verður Steinway fyrir valinu.

Hægt er að leggja verkefninu lið með því að gefa í flygilsjóð kirkjunnar; 0133-15-001647 á kennitölu 610172-0169.

Nýverið hlaust styrkur úr Uppbyggingasjóði Suðurlands sem nýtist til að halda fjáröflunartónleika í kirkjunni þar sem allur ágóði rennur í flygilsjóðinn. 

Skálholtsdómkirkja hefur nýlega hlotið gagngera yfirhalningu og er nú sem ný.  Kirkjan hefur sterka stöðu sem miðstöð ýmissa menningarviðburða auk þess að vera vinsæl fyrir kirkjulegar athafnir og tónleika. Við kirkjuna starfa nú prestur, djákni, organisti auk vígslubiskups. Skálholtskórinn á heimili í kirkjunni en saga kórsins er löng og starf hans hefur skapað mikla tónlistarhefð í uppsveitum Árnessýslu.

Löngu er tímabært að Skálholtsdómkirkja eignist gæða flygil en þar er hljómburður einn sá besti á landinu og er kirkjan talin vera eitt besta sönghús landsins. Flygill í Skálholtsdómkirkju myndi lyfta kirkjunni á hærri stall sem tónlistarhúsi og stórauka fjölbreytni öflugs tónlistarlífs í Skálholti. Menningarflóra Suðurlands myndi blómstra og gestum kirkjunnar myndi fjölga enn frekar. 

Mikil aukning hefur orðið á tónleikahaldi í kirkjunni og er orðin sívaxandi þörf á slíku hljóðfæri. Fjölmargir kórar,  íslenskir sem erlendir, sækjast eftir því að koma fram í Skálholti. Mörg kórverk eru skrifuð fyrir kór með píanóundirleik og hefur því oft verið notast við rafmagnshljóðfæri af misjöfnum gæðum og töluverðum tilfæringum.

Ljóst er að með tilkomu flygils mun helgi- og tónlistarhald Skálholtsdómkirkju fá á sig enn fegurri og fjölbreyttari blæ auk þess sem staða Skálholtsdómkirkju mun styrkjast enn frekar sem tónlistarhús og menningarmiðstöð á Suðurlandi.

Flygilinn sem verður af Steinway tegund kostar í  dag um 20 milljónir króna, með flutningi og stillingu. Enn vantar því um 13 milljónir til þess að fullfjármagna  þessa framkvæmd.

bottom of page