Framkvæmdarstjóri
Framkvæmdastjóri Skálholts er Herdís Friðriksdóttir.
Framkvæmdastjóri Skálholts er Herdís Friðriksdóttir.
Herdís er skógfræðingur að mennt auk MPM gráðu í verkefnastjórnun og hefur víðtæka starfsreynslu úr atvinnulífinu.
Frá 2017 hefur Herdís rekið eigið fyrirtæki, Understand Iceland sem framkvæmdastjóri. Understand Iceland sérhæfir sig í fræðsluferðum fyrir háskólanemendur og fróðleiksfúsa Norður-Ameríkana.
Þar á undan starfaði Herdís sem verkefnastjóri Sesseljuhúss, umhverfisseturs á Sólheimum og fyrr sem sérfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Herdís er gift Einari Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsverði þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þau eiga saman tvær dætur; Guðnýju Helgu (f. 2002) og Þórhildi Júlíu (f. 2004). Herdís og Einar eru sveitungar Skálholtsstaðar og búa með fjölskyldu sinni í Reykholti.
Netfang: herdis@skalholt.is
Sími: 856-1517