top of page

Fornleifaskóli barnanna kl 12:00 - laugardag og sunnudag

Sun, Jul 21

|

Skálholt

Fornleifaskóli Barnanna – Eva Bryndís Ágústdóttir fornleifafræðingur kynnir ýmsar fornleifar og gripi sem fundist hafa í Skálholti. Börnin fá svo að grafa eftir fornleifum í fornleifaskóla barnanna. Kl 12:00 bæði laugardag og sunnudag. Mæting við kirkjuna

Fornleifaskóli barnanna kl 12:00 -  laugardag og sunnudag
Fornleifaskóli barnanna kl 12:00 -  laugardag og sunnudag

Time & Location

Jul 21, 2024, 12:00 PM – 1:00 PM

Skálholt, Skálholt, Ísland

About the event

Fornleifaskóli Barnanna - börn eru boðin velkomin bæði laugardag og sunnudag kl 12:00. 

Eva Bryndís Ágústdóttir fornleifafræðingur og fyrrum kirkjuvörður í Skálholtsdómkirkju kynnir ýmsar fornleifar og gripi sem fundist hafa í Skálholti.  Fornleifauppgröftur hefur farið fram í Skálholti árin 1954 - 1958 og á árunum 2002-2007. Eva Bryndis kynnir börnunum þær fornleifar sem hafa fundist m.a. steinkistu Páls Jónssonar, ýmsa legsteina og undirgöngin. Einnig fornleifasvæðið sem sýnir húsaskipan á 17 og 18 öld í Skálholti. Eva Bryndís fjallar um þá gripi sem fundust við þann uppgröft og sýnir börnunum graffiti frá skólapilti sem ritaði nafn sitt á steinhleðslu. 

Börnin fá svo að grafa eftir fornleifum í fornleifaskóla barnanna.

Mæting við kirkjuna.

Share this event

bottom of page