Strengjakvartetinn NOVO í Skálholti
Sat, Mar 01
|Skálholtsdómkirkja
Dansk/Pólski strengjakvartetinn NOVO heldur tónleika í Skálholti laugardaginn 1. mars kl 16:00. Kvartetinn er meðal þeirra eftirsóttustu í Danmörku og eru komin til landsins til að halda tónleika í Hörpu. Tónleikarnir eru ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum í flygilsjóð Skálholtsdómkirkju.


Time & Location
Mar 01, 2025, 4:00 PM – 5:00 PM
Skálholtsdómkirkja, Skálholt
About the event
Margverðlaunaði og eftirsótti strengjakvartetinn NOVO flytur verk eftir Beethoven og Bacewicz á tónleikunum í Skálholtsdómkirkju.
Um tónleikana í Skálholti segir NOVO kvartettinn:
“Í kvartettinum okkar fögnum við fjölbreyttum bakgrunni okkar frá Danmörku og Póllandi. Á tónleikum okkar vorið 2025 ætlum við að heiðra rætur pólska víóluleikarans okkar. Við höfum valið verk eftir Bacewicz, sem er magnað kventónskáld, en verk hennar eiga skilið meiri viðurkenningu. Samhliða verki hennar munum við gleðja áheyrendur með tímalausum kvartett eftir Beethoven sem tryggir blöndu af hefð og nýsköpun í efnisskránni. Okkur hefur lengi dreymt um að heimsækja Íslands, og við hlökkum mikið til að spila í Skálholti.”
Það sem einkennir NOVO kvartettinn eru djúp vináttutengsl meðlima á milli. Gagnkvæm virðing og umhyggja fyrir samstarfsaðilum birtist skýrt í listrænni sýn kvartettsins og er greinanleg í flutningi og sviðsframkomu þeirra, sem og djúp virðing fyrir þeirri tónlist sem kvartettinn tekur að sér að flytja.
Tónleikarnir eru ókeypis…