top of page

lau., 20. júl.

|

Skálholt

Dagskrá Skálholtshátíðar 2024 - Ávöxtur friðar er okkar ljós

Skálholtshátíð verður haldin helgina 20. - 21. júlí 2024 í Skálholti. Hún var fyrst haldin árið 1949 fyrir 75 árum. Yfirskrift hátíðarinnar er Ávöxtur friðar er okkar ljós.

Dagskrá Skálholtshátíðar 2024 - Ávöxtur friðar er okkar ljós
Dagskrá Skálholtshátíðar 2024 - Ávöxtur friðar er okkar ljós

Tími og staðsetning

20. júl. 2024, 09:00 – 21. júl. 2024, 18:00

Skálholt, Skálholt,

Um viðburðinn

DAGSKRÁ SKÁLHOLTSHÁTÍÐAR 2024

LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ, ÞORLÁKSMESSA Á SUMAR

Kl. 9.00. Útimessa við Þorlákssæti. Gengið er frá höfuðdyrum kirkjunnar. Sr. Kristján Björnsson leiðir messuna og setur Skálholtshátíð í sæti Þorláks helga Þórhallssonar.

Kl. 10 - 12. Málþing um frið og von fyrir botni Miðjarðarhafsins. Málþing á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar öllum opið.

Fyrirlesarar: Dr. Munther Isaac, prestur lúthersku kirkjunnar í Betlehem, og dr. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor við Williams háskóla í Massachusetts í Bandaríkjunum, auk viðbragða frá Ólöfu Ragnarsdóttur, fréttamanni RÚV. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna í Palestínu verður erindi dr. Munther í fjarfundi og með pallborði hans. Sá hluti er á ensku.

Bogi Ágústsson, formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar setur málþingið. Málstofustjóri er sr. Matthildur Bjarnadóttir.

Kl. 12.00. Hádegisverður á Hvönn.

Kl. 12.00. Fornleifaskóli barnanna. Eva Bryndís Ágústdóttir fornleifafræðingur kynnir börnunum ýmsar fornleifar og gripi sem hafa fundist í Skálholti. Mæting við kirkjuna.

Kl. 13.00 - 14.20. Málstofa til minningar um dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar.

Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindi um Karl biskup sem hann nefnir: „Boðberi trúar í lífi og starfi.“

Sunginn verður sálmur eftir Karl biskup Sigurbjörnsson.

Málstofustjóri: Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup.

Kl. 16.00. Hátíðartónleikar á Skálholtshátíðar 2024 á 75 ára afmæli Skálholtshátíðar. Flutt verður fjölbreytt og hátíðleg tónlist og er stjórnandi þeirra Jón Bjarnason, organisti. Hápunkturinn á hátíðartónleikunum er Kantata eftir Johann Sebastian Bach, Vergnügte Ruh, beliebte Seelenlust, BWV 170, sólókantata sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir flytur ásamt orgeli, óbói og strengjasveit. Auk þess verður fluttur orgelkonsert eftir Georg Friedrich Handel og Skálholtskórinn flytur verk eftir Antonio Lotti.

Auk Sigríðar Óskar Kristjánsdóttur, eru helstu flytjendur Páll Palomares konsertmeistari, Matthías Birgir Nardeau óbóleikari og Skálholtskórinn.

Kl. 18.00. Tíðargjörð í Skálholtsdómkirkju.

SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ, SKÁLHOLTSHÁTÍÐ Í 75 ÁR - ÁVÖXTUR FRIÐAR ER OKKAR LJÓS

Kl. 9.00. Tíðargjörð í Skálholtsdómkirkju.

Kl. 11.00. Orgeltónleikar Jóns Bjarnasonar, organista. Flutt verða verk eftir Johann Sebastian Bach á orgelið í Skálholtsdómkirkju.

Kl. 12.00. Fornleifaskóli barnanna. Eva Bryndís Ágústdóttir fornleifafræðingur kynnir börnunum ýmsar fornleifar og gripi sem hafa fundist í Skálholti. Mæting við kirkjuna.

Kl. 14.00. Hátíðarmessa í Skálholtsdómkirkju. Skálholtshátíð 1949 – 2024. Minnisversið er: „Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur.“ (Ef 5.8b-9). Gullna reglan og þrönga hliðið. (Matt. 7.12-14). Skálholtskórinn syngur. Stjórnandi og organisti er Jón Bjarnason. Trompetleikarar eru Jóhann I. Stefánsson og Vilhjálmur Ingi Sigurðarson. Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur, sr. Axel Á. Njarðvík, sóknarpresti, Bergþóru Ragnarsdóttur, djákna, sr. Örnu Grétarsdóttur, sr. Guðlaugu Helgu Guðlaugsdóttur og frú Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands. Lesarar eru Erlendur Hjaltason, formaður Skálholtsfélagsins hins nýja, og Bogi Ágústsson, formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar.

Kl. 15.00. Kirkjukaffi á Hvönn í boði Skálholtsstaðar.

Kl. 16.00. Hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju. „Ávöxtur friðar er okkar ljós.“ Hátíðarerindið flytur forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson. Gísli Stefánsson, bariton, syngur einsöng og Skálholtskórinn syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar, organista. Flutt verður stutt ágrip af sögu Skálholtshátíða í 75 ár. Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flytur ávarp. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra flytur ávarp. Vígslubiskup stýrir dagskrá og flytur fréttir.

Kl. 18.00. Te Deum í Skálholtsdómkirkju

Deila viðburði

bottom of page