top of page

Pílagrímaganga frá Reynivöllum í Kjós til hámessu í Skálholtsdómkirkju

fim., 18. júl.

|

Location is TBD

Hin árlega pílagrímaganga verður gengin frá Reynivallakirkju í Kjós frá Stiflisdal, frá Þingvallakirkju og frá Neðra Apavatni heim að Skálholtsdómkirkju á Skálholtshátíð. Göngurnar hefjast kl. 9 alla daga frá fimmtudegi 18. júlí til sunnudagsins 21. júlí. Leiðsögumaður er sr. Arna Grétarsdóttir.

Pílagrímaganga frá Reynivöllum í Kjós til hámessu í Skálholtsdómkirkju
Pílagrímaganga frá Reynivöllum í Kjós til hámessu í Skálholtsdómkirkju

Tími og staðsetning

18. júl. 2024, 09:00 – 21. júl. 2024, 04:00

Location is TBD

Um viðburðinn

Hin árlega pílagrímaganga verður gengin frá Reynivallakirkju í Kjós að Stíflisdal, þaðan að Þingvallakirkju að Neðra Apavatni og loks þaðan til Skálholtsdómkirkju á Skálholtshátíð. Leiðinni er skipt upp á fjóra göngudaga frá fimmtudeginum 18. júlí til sunnudagsins 21. júlí og hefjast göngurnar kl. 9 alla daganna. Göngudagarnir eru mislangir en hverjum er frjálst að skrá sig og ganga eina dagleið eða part úr dagleið.

Dagur 1. Reynivallakirkja að brúnni í Stíflisdal. Dagur 2. Stíflisdalur að Þingvallakirkju. Dagur 3. Þingvallakirkja að Neðra-Apavatni. Dagur 4. Neðra-Apavatn inn til hámessu í Skálholtsdómkirkju.

Pílagrímar ganga inn kirkjugólf Skálholtsdómkirkju við upphaf hátíðarmessu kl. 14 sunnudaginn 21. júlí við söng pílagrímsins Fögur er foldin. Þar tekur vígslubiskup á móti þeim við skírnarfontinn og leiðir hann minningu skírnarinnar með pílagrímum og messan hefst þar með syndajátningu og friðarkveðju.

Gangan er fólki að kostnaðarlausu en gert er ráð fyrir að fólk finni sér gistingu sjálft. Útbúnaður og nesti er á ábyrgð hvers og eins. Hluti göngunnar er gengin í kyrrð og við hverja áningu er stutt íhugun, bæn eða ritningarlestur. Hver gengur á sínum hraða í þögn eða spjalli, allt eftir vilja og þörf hvers og eins.

Vígslubiskup í Skálholtsumdæmis sr. Kristján Björnsson mun leiða fararblessun við upphaf göngu á Reynivöllum og sr. Axel Árnason Njarðvík sóknarprestur Skálholtsprestakalls mun leiða bæn við Neðra - Apavatn síðasta göngudaginn.

Göngustjórar pílagrímagöngunnar eru hjónin sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur á Reynivöllum í Kjós (arna.gretarsdottir(hjá) kirkjan.is, gsm. 865 2105) og Rúnar Vilhjálmsson.

Vinsamlega skráið ykkur með því að skrá ykkur hér á facebook eða hafa samband við sr. Örnu.

Nánar um Pílagrímagöngur.

Pílagrímagöngur eru hluti af hinum kristna trúar- og menningararfi. Þau sem ferðast til heilagra staða eru kallaðir pílagrímar. Þetta orð er komið úr miðaldalatínu (pelegrinus) en á rætur í klassískri latínu (peregrinus, útlendingur). Slíkar göngur eru farnar af misjöfnum ástæðum; í þakkargjörð, í yfirbótarskyni, til andlegrar- og líkamlegar heilsubótar eða af trúarlegum og/eða menningarlegum áhuga. Gengið er í áföngum en hlé eru notuð til bænahalds, ritningarlesturs eða til íhugunar og kyrrðar.

Sjö lyklar pílagrímsins eru: Frelsi, Einfaldleiki, Rósemi, Kyrrð (Þögn), Æðruleysi, Samkennd og Andlegur vöxtur. Þessir lyklar verða íhugaðir með þeim hætti sem hver og einn kýs.

Nánari upplýsingar á FB viðburði Pílagrímagöngunnar hér.

Dagskrá Skálholtshátíðar má finna hér: www.skalholt.is

Deila viðburði

bottom of page