Málþingið um sálma 16.aldar í Skálholtsdómkirkju
- perlamariakarlsdot
- Apr 1, 2024
- 1 min read
Updated: Jun 10, 2024
Fyrsta sunnudag eftir páska, 7. apríl kl. 14, er málþing í Skálholtsdómkirkju um sálma, handbækur og sálmaskáld 16. aldar en þetta eru fyrstu sálmabækur eftir siðbótina. Tilefnið er ný og vegleg útgáfa Hins íslenska bókmenntafélags á endurgerð sálmabóka og handbóka Marteins biskups Einarssonar (1555) og Gísla biskups Jónssonar (1558) í Skálholti og Guðbrandar biskups Þorlákssonar á Hólum (1589). Karl biskup Sigurbjörnsson var einn aðal hvatamaður að útgáfunni og vann að henni með Braga Halldórssyni, Jóni Torfsyni, Guðrúnu Laufeyju Guðmundsdóttur, Kristjáns Eiríkssonar og Elínar Gunnlaugsdóttur sem öll flytja erindi á málþinginu. Þá mun Gunnlaugur Bjarnason syngja sálma úr bókunum og styðjast við nótur sem einnig voru prentaðar með í þessum bókum. Í fyrsta sinn voru nótur með í sálmabókum á Íslandi og einnig nýir bragarhættir. Á málþinginu leikur Jón Bjarnason verk eftir J.S. Bach og fleiri.
Málþingið er öllum opið og án aðgangseyris. Skálholtsfélagið hið nýja stendur að málþinginu og býður öllum að þiggja kaffiveitingar á eftir á Veitingastaðnum Hvönn í Skálholti.
Messa er í Skálholtsdómkirkju sama dag kl. 11. Þess verður minnst að 475 ár eru frá biskupsvígslu Marteins Einarssonar í Skálholti og daginn eftir, 8. apríl, er vígsludagur Guðbrandar Þorlákssonar á Hólum. Prestar eru sr. Axel J. Njarðvík og sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup, og organisti er Jón Bjarnason.
Comments