Skálholtshátíð í 75 ár 1949 – 2024
Ávöxtur friðar er okkar ljós
Laugardagur 20. júlí, Þorláksmessa á sumar
Kl. 9.00. Útimessa við Þorlákssæti. Setning Skálholtshátíðar.
Kl. 10 - 12. Málþing um frið og von fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Seminar (að hluta á ensku) á vegum Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar.
Fyrirlesarar: Dr. Munther Isaac, prestur lúthersku kirkjunnar í Betlehem, og
dr. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor við Williams háskóla í
Massachusetts í Bandaríkjunum, auk Ólafar Ragnarsdóttur, fréttamanns RÚV.
Bogi Ágústsson, formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar setur
málþingið. Málstofustjóri er sr. Matthildur Bjarnadóttir.
Kl. 12.00. Hádegisverður á Hvönn.
Kl. 12.00. Fornleifaskóli Barnanna – Eva Bryndís Ágústdóttir
fornleifafræðingur kynnir ýmsar fornminjar og gripi sem fundist hafa í Skálholti.
Börnin fá svo að grafa eftir fornleifum.
Kl. 13.00 - 14.20. Málstofa til minningar um dr. Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands.
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson flytur erindi um Karl biskup undir heitinu Boðberi trúar í lífi og starfi.
Hjónin Steinunn Jóhannesdóttir og Einar Karl Haraldsson flytja erindi um nálægð Karls biskups og áhrif í listum innan kirkjunnar.
Sunginn verður sálmur eftir Karl biskup Sigurbjörnsson.
Málstofustjóri: Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup.
Kl. 16.00. Hátíðartónleikar á Skálholtshátíðar 2024 á 75 ára afmæli
Skálholtshátíðar. Flutt verður fjölbreytt og hátíðleg tónlist og er stjórnandi
þeirra Jón Bjarnason, organisti. Hápunkturinn á hátíðartónleikunum er
Kantata eftir Johann Sebastian Bach,Vergnügte Ruh, beliebte Seelenlust, BWV
170, sólókantata sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir flytur ásamt orgeli, óbói og
strengjasveit. Auk þess verður fluttur orgelkonsert eftir Georg Friedrich
Handel og Skálholtskórinn flytur verk eftir Antonio Lotti.
Auk Sigríðar Óskar Kristjánsdóttur, eru helstu flytjendur Páll Palomares
konsertmeistari, Matthías Birgir Nardeau óbóleikari og Skálholtskórinn.
Kl. 18.00. Tíðargjörð í Skálholtsdómkirkju.
Sunnudagur 21. júlí, Skálholtshátíð í 75 ár
Kl. 9.00. Tíðargjörð í Skálholtsdómkirkju.
Kl. 11.00. Orgeltónleikar Jóns Bjarnasonar. Það eru allt verk eftir Johann
Sebastian Bach sem verða flutt á orgelið í Skálholtsdómkirkju.
Kl. 12.00. Fornleifaskóli Barnanna – Eva Bryndís Ágústdóttir
fornleifafræðingur kynnir ýmsar fornminjar og gripi sem fundist hafa í Skálholti.
Börnin fá svo að grafa eftir fornminjum.
Kl. 14.00. Hátíðarmessa í Skálholtsdómkirkju. Skálholtshátíð 1949 –
2024. „Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. Því að ávöxtur ljóssins er
einskær góðvild, réttlæti og sannleikur.“ (Ef 5.8b-9). Gullna reglan og þrönga
hliðið. (Matt. 7.12-14). Skálholtskórinn syngur. Stjórnandi og organisti er Jón
Bjarnason. Trompetleikarar eru Jóhann I. Stefánsson og Vilhjálmur Ingi
Sigurðarson. Sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup, prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur, sr. Axel Á.
Njarðvík, sóknarpresti, Bergþóru Ragnarsdóttur, djákna, sr. Guðlaugu Helgu
Guðlaugsdóttur og frú Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands. Lesarar eru
Erlendur Hjaltason, formaður Skálholtsfélagsins hin nýja, og Bogi Ágústsson,
formaður Stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar. Í upphafi messunnar ganga pílagrímar til kirkju undir leiðsögn sr. Örnu Grétarsdóttur en þau hafa gengið frá Reynivöllum í Kjós á fjórum dögum.
Kl. 15.00. Kirkjukaffi í boði Skálholtsstaðar.
Kl. 16.00. Hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju.
„Ávöxtur friðar er okkar ljós.“
Ávarp: Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Hátíðarerindið flytur forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson.
Flutt verður stutt ágrip af sögu Skálholtshátíða í 75 ár.
Ávarp menningarmálaráðherra, Lilju Daggar Alfreðsdóttur.
Gísli Stefánsson, bariton, syngur einsöng og Skálholtskórinn syngur undir
stjórn Jóns Bjarnasonar, organista.
Vígslubiskup stýrir dagskrá og flytur fréttir.
Kl. 18.00. Te Deum í Skálholtsdómkirkju
Comments