top of page

Tónleikar með bandaríska þjóðlaga hópnum Havreh Ensamble 14. júlí kl 18:00

Hevreh Ensemble er tónlistarhópur frá New York í Bandaríkjunum býður upp á ókeypis tónleika í Skálholtskirkju föstudagnn 14. júlí kl 18:00


Á tónleikunum flytja þau verk eftir hópmeðliminn Jeff Adler.


Dagskráin samanstendur af jazz - heimstónlist - klassík og mun hópurinn leika á fjölbreytt hljóðfæri, eins og Cherokee indíánaflautur, klarinett, bassaklarinett, óbó, enskt horn og heimsslagverk sem inniheldur djembe, dumbek, sjávartrommu, balafon, kalimba, regnstaf, tabla, stokktrommu, lyklaborð og shofar.


Hópurinn hefur haldið tónleika jafnt í Evrópu og Bandaríkjunum og hlotið fjöldann allan af verðlaunum og viðurkenningum.


Hér má kynna sér hópinn betur: http://hevrehensemble.com



Comments


bottom of page