Ástralskur kór með ókeypis hádegistónleika 20.sep
- perlamariakarlsdot
- Sep 16, 2023
- 1 min read
Updated: Jun 10, 2024
Ástralski kórinn Southland Choir heldur tónleika í Skálholtskirkju miðvikudaginn 20 september kl 12:00.
Kórinn skilgreinir sig sem ferðakór og hefur haldið tónleika víða um heim. Kórinn er nú á Íslandi og verður á ferð um landið í september og heldur tónleika víða um land.
Kórmeðlimir eru 25 talsins á öllum aldri. Þeirra helsta ástríða er góð tónlist og ferðalög. Meðal verka á dagskránni sem þau bjóða uppá í Skálholti er tónlist frumbyggja Ástralíu, auk hefðbundinna og samtíma verka frá Ástralíu.
Stjórnandi er Dr. Rachelle Elliot.
Búast má við mjög skemmtilegum tónleikum. Verið öll velkomin í Skálholtskirkju!
Comentarios